34. (1895). fundur
34. (1895). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
10.09.2019
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf Sorpu bs. varðandi breytingar á fjárfestinga- og fjármögnunaráætlun, dags. 02.09.19.
Á fund bæjarráðs mættu Birkir Jón Jónsson, formaður stjórnar Sorpu bs. og Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri. Gerðu þeir grein fyrir erindi stjórnar byggðasamlagsins varðandi breytingar á fjárfestinga- og fjármögnunaráætlun og samþykkt stjórnarinnar um lántöku að fjárhæð kr. 990.000.000 hjá Lánsjóði sveitarfélaga vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar og kaupa á tækjabúnaði.
Í bréfinu er farið fram á formlega afgreiðslu á einfaldri ábyrgð Garðabæjar vegna samþykktar stjórnar Sorpu bs. á lántöku.
Bæjarráð vísar erindi um einfalda ábyrgð vegna lántöku til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarfulltrúarnir Harpa Þorsteinsdóttir og Björg Fenger sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
02
Garðprýði 7 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðprýði ehf., kt. 511115-0780, leyfi til breyta þaki o.fl. á einbýlishúsi í byggingu að Garðprýði 7.
03
Kinnargata 28 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Baugási ehf., kt. 581104-2510 leyfi til að byggja raðhús að Kinnargötu 28.
04
Kinnargata 30 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Baugási ehf., kt. 581104-2510 leyfi til að byggja raðhús að Kinnargötu 30.
05
Kinnargata 32 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Baugási ehf., kt. 581104-2510 leyfi til að byggja raðhús að Kinnargötu 32.
06
Kinnargata 34 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Baugási ehf., kt. 581104-2510 leyfi til að byggja raðhús að Kinnargötu 34.
07
Dýjagata 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Árna Heimi Ingimundarsyni, kt. 211281-3329, leyfi til að breyta burðarvirki í einbýlishúsi í byggingu að Dýjagötu 5.
08
Bréf Reykjavíkurborgar varðandi auglýsingu á tillögu að breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2040 og aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, dags. 28.08.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
09
Tilkynning frá Reykjavíkurborg varðandi kynningu á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 vegna Sjómannaskólareits og Veðurstofuhæðar, dags. 30.08.19.
Bæjarráð vísar tilkynningunni til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
10
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins varðandi minningardag um fórnarlömb umferðarslysa, dags. 27.08.19.
11
Umsagnarbeiðni vegna endurnýunar á rekstrarleyfi fyrir gististað að Eyvindarholti.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
12
Bréf Lögmanna á Suðurlandi varðandi sölu á landspildum úr landi Búðarflatar, dags. 05.09.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.