46. (1907). fundur
46. (1907). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
03.12.2019
Kl. 08:00 - 08:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1910346
01
Jafnlaunakerfi Garðabæjar - leiðbeiningar til starfsmanna.
Á fund bæjarráðs mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir aðgangi starfsmanna að jafnlaunakerfi Garðabæjar og kynnti myndband með leiðbeiningum varðandi aðgang að kerfinu og málsmeðferð vegna ábendinga. Inga Þóra gerði einnig grein fyrir vinnu við jafnlaunavottun en úttekt fór fram 27. og 28. nóvember sl. Úttektarskýrsla liggur fyrir þar sem mælt er með því að veita Garðabæ vottun á að jafnlaunakerfið uppfylli kröfur jafnlaunastaðals ÍST 85:2012.
Málsnúmer 1904109
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023).
Lögð fram tillaga um álagningu fasteignagjalda á árinu 2020 ásamt breytingum á áður samþykktri gjaldskrá sorphirðugjalda.
Lögð fram tillaga um breytingar á einstaka liðum við A og B - hluta frumvarps að fjárhagsáætlun ásamt breytingu á tillögu að framkvæmdayfirliti.
Bæjarráð samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2020-2023 ásamt tillögum að breytingum við einstaska liði og tillögu um álagningu gjalda til síðari umræðu í bæjarstjórn fimmtudaginn 5 desember nk.
Málsnúmer 1911383
03
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Álftanes Café.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1702065
04
Dómur Landsréttar í máli Garðabæjar gegn íslenska ríkinu um starfsemi Ísafoldar, dags. 22.11.19.
Lagður fram dómur Landsréttar þar sem íslenska ríkið er sýknað af kröfum Garðabæjar um bætur vegna uppsafnað taps af rekstri hjúkrunarheimilisins Ísafoldar á árunum 2013-2015.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911397
05
Bréf Mæðrastyrksnefndar varðandi fjárframlag, dags. 28.11.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911418
06
Tillaga Garðabæjarlistans varðandi samgöngur barna og ungmenna.
Bæjarverkfræðingur sagði frá vinnu við endurskoðun á umferðaröryggisáætlun Garðabæjar en fyrirhugað er að kynna drög að áætluninni á íbúafundi og óska eftir ábendingum íbúa.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu Garðabæjarlistans til tækni- og umhverfissviðs og til vinnu við endurskoðun umferðaröryggisáætlunar en eldri áætlun var samþykkt árið 2013.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911427
07
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi kynningu á Loftlagssjóði, dags. 28.11.19.
Málsnúmer 1911365
08
Erindi Landsnets varðandi matslýsingu fyrir kerfisáætlun 2020-2029, dags. 25.11.19.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í umhverfisnefnd og skipulagsnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911419
09
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum, 391. mál., dags. 29.11.19.
Lagt fram.