19. (878). fundur
19. (878). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
17.12.2020
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Gunnar Valur Gíslason
- Jóna Sæmundsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Björg Fenger
- Gunnar Einarsson
- Sara Dögg Svanhildardóttir
- Ingvar Arnarson
- Harpa Þorsteinsdóttir
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020. Fundinum er streymt beint á vefsíðu Garðabæjar.
Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 3. desember 2020 er lögð fram.
Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi 24. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021-2024 og framlagða bókun bæjarfulltrúa Söru Daggar Svanhildardóttur.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi sama mál.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 8/12 ´20.
Björg Fenger, ræddi 10 tl., erindi frá SSH varðandi samþykkt stjórnar um kynningu á skýrslu á umferðarljósastýringum á höfuðborgarsvæðinu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., ábendingu frá íbúa varðandi frágang á hringtorgi á móts við Bessastaði.
Gunnar Einarsson, ræddi 9. tl., erindi SSH varðandi samþykkt stjórnar um yfirfærslu vega frá ríki til sveitarfélaga.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., ábendingu frá íbúa varðandi frágang á hringtorgi á móts við Bessastaði.
Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 15/12 ´20.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 8. tl., bréf SSH varðandi málefni skíðasvæðanna, 9. tl., bréf SSH varðandi stafrænt ráð sveitarfélaganna, 10. tl., álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis vegna framkvæmda fjarfunda, 11. tl., samning um keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun leikskóla í Urriðaholti, 13. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um umbun til starfsmanna leik- og grunnskóla, 14. tl., tillögu Garðabæjarlistans um að Garðabær innleiði Framfaravogina, mælitæki sem mælir velsæld bæjarbúa og 15. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um uppfærslu rafrænna umsókna og umsóknareyðublaða sveitarfélagsins til samræmis við lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Björg Fenger, ræddi 8. tl., bréf SSH varðandi málefni skíðasvæðanna.
Ingvar Arnarson, ræddi 9. tl., bréf SSH varðandi stafrænt ráð sveitarfélaganna, 11. tl. samning um keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun leikskóla í Urriðaholti 14. tl., tillögu Garðabæjarlistans um að Garðabær innleiði Framfaravogina, mælitæki sem mælir velsæld bæjarbúa og 15. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um uppfærslu rafrænna umsókna og umsóknareyðublaða til samræmis við lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., bréf SSH varðandi erindi Fjölsmiðjunnar um fjárstuðning, 8. tl., bréf SSH varðandi málefni skíðasvæðanna, 9. tl., bréf SSH varðandi stafrænt ráð sveitarfélaganna, 11. tl., samning um keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun leikskóla í Urriðaholti og 13. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um umbun til starfsmanna leik- og grunnskóla.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 11. tl., samning um keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun leikskóla í Urriðaholti.
Almar Guðmundsson, rædd 7. tl., bréf SSH varðandi erindi Fjölsmiðjunnar um fjárstuðning, 9. tl., bréf SSH varðandi stafrænt ráð sveitarfélaganna, 14. tl., tillögu Garðabæjarlistans um að Garðabær innleiði Framfaravogina, mælitæki sem mælir velsæld bæjarbúa og 15. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um uppfærslu rafrænna umsókna og umsóknareyðublaða til samræmis við lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
2.2 - 1904109 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - viðauki 15.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 15 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Launakostnaður
Á árinu 2020 stefnir í að kostnaður vegna langtímaveikinda þ.e. veikindi starfsmanna í einn mánuð eða fleiri nemi um 145 m.kr. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 25 mkr. á skólaskrifstofu til að mæta þessum kostnaði. Kostnaður umfram fjárhagsáætlun nemur því um 120 m.kr.
Skipting á málaflokka er eftirfarandi.
Félagsþjónustusvið kr. 29.000.000
Fræðslumál kr. 82.000.000
Æskulýðs- og íþróttamál kr. 6.000.000
Eignasjóður kr. 3.000.000
Samtals kr. 120.000.000
Rekstrarframlag til Hrafnistu vegna Ísafoldar
Aukin framlög vegna viðaukasamnings við Hrafnistu sem samþykkt var í bæjarráði 20. október sl.
Rekstrarframlag kr. 1.400.000 02472-9990
Snjómokstur og hálkuvarnir
Ljóst er að kostnaður vegna hálkuvarna og snjómoksturs stenst ekki áætlun ársins. Staðan í nóv. er þannig að kostnaður er kominn 16 mkr. fram úr áætlun Lagt er því til að bæta við 35 mkr við áætlun.
Hálkuvarnir og snjómokstur kr. 35.000.000 10610-4521
Kostnaðarauki samtals kr. 156.400.000
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur nú endurreiknað framlög til sveitarfélaga vegna viðbótarframlags frá ríkinu til að vega upp á móti lægri framlögum til sjóðsins 2020.
Málefni fatlaðra kr. 46.000.000 00100-0148
Framlög vegna sérþ. fatlaðs fólks kr. 26.000.000 00100-0142
Samtals kr. 72.000.000
Mismunur - 84.400.000 Lækkun á handbæru fé.
Fylgiskjöl
2.8 - 2012149 - Bréf SSH varðandi málefni skíðasvæðanna, dags 08.12.20.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka II við samkomulag um endurnýjun á uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7. maí 2018, enda verði hann samþykktur í öllum aðildarsveitarfélögunum. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að undirrita samninginn. (Mál nr. 2012149)
Fylgiskjöl
2.9 - 2012150 - Bréf SSH varðandi stafrænt ráð sveitarfélaga, dags. 09.12.20.
Bæjarstjórn samþykkir þátttöku Garðabæjar í kostnaði á árinu 2021 vegna stofnunar á miðlægu tækniteymi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hlutur Garðabæjar er um 2,5 mkr. Samþykktin er með fyrirvara um almenna þátttöku sveitarfélaga í verkefninu. (Mál nr. 2012150)
Fylgiskjöl
- Stafrænt ráð sveitarfélaga 2012003.pdf
- 4) Tillaga um skiptingu fasts kostnaðar vegna stafræns teymis sveitarfélaga..pdf
- 3) Fjármögnun sameiginlegra starfrænna verkefna, glærukynning dags. 18.11.2020..pdf
- 2) Erindisbréf fyrir stafrænt ráð sveitarfélaga, dags. 08.10.2020..pdf
- 1)Tölvupóstur Áslaugar Huldu Jónsdóttur til framkvæmdastjóra aðildarsveitarfélaga SSH og framkvæmdastjóra SSH, 27.11.2020.pdf
- Fylgibréf stafrænt ráð G.pdf
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 11/12 ´20.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar 2020, 2. tl. endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar, 3. tl., endurskoðun íþróttastefnu, 4. tl., endurskoðun afreksstefnu, 5. tl., úthlutun úr 19, júní sjóði og önnur mál - störf samráðhóps SSH og sameiginlegan fund íþrótta- og tómstundaráðs og fjölskylduráðs.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar 2020, 2. tl. endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar, 3. tl., endurskoðun íþróttastefnu, 4. tl., endurskoðun afreksstefnu, 5. tl., úthlutun úr 19, júní sjóði og önnur mál - sameiginlegan fund íþrótta- og tómstundaráðs og fjölskylduráðs.
Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs undir fundargerðinni og færði Stjörnunni haminguóskir bæjarstjórnar með útgáfu á sögu félagsins í tilefni af 60 ára afmæli þess.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar 2020, 3. tl., endurskoðun íþróttastefnu og 4. tl., endurskoðun afreksstefnu.
Björg Fenger, ræddi að nýju 3. tl., endurskoðun íþróttastefnu, 4. tl., endurskoðun afreksstefnu og 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar vegna ársins 2020.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar 2020.
Fundargerðin er lögð fram.
04
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 7/12 ´20.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., innleiðingu sameiginlegs útlánakerfis bókasafna á höfuðborgarsvæðinu, 3. tl., endurskoðun menningarstefnu, 4. tl., endurnýjun samnings við Kvennakór Garðabæjar, 5. tl., endurnýjun samnings við Grósku, 6. tl., rafræna menningarviðburði og 7. tl., styrkbeiðni vegna tónleika Camerarctica í Garðakirkju í desember.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., innleiðingu sameiginlegs útlánakerfis bókasafna á höfuðborgarsvæðinu, 4. tl., endurnýjun samnings við Kvennakór Garðabæjar og 5. tl., endurnýjun samnings við Grósku,
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., innleiðingu sameiginlegs útlánakerfis bókasafna á höfuðborgarsvæðinu, 3. tl., endurskoðun menningarstefnu, 4. tl., endurnýjun samnings við Kvennakór Garðabæjar, 5. tl., endurnýjun samnings við Grósku,
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., innleiðingu sameiginlegs útlánakerfis bókasafna á höfuðborgarsvæðinu og 6. tl., rafræna menningarviðburði.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl., endurskoðun menningarstefnu.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 30/11 ´20.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., samskiptavanda nemenda og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Fulltrúi Garðabæjarlistans í skólanefnd harmar vinnubrögð Sjálfstæðismanna sem kusu að halda upplýsingum frá skólanefnd, lögbundnum eftirlitsaðila með grunnskólastarfi sveitarfélagsins. Í athugasemdum mennta- og menningarmálaráðuneytisins koma fram alvarlegar ábendingar um að skóli í sveitarfélaginu fari ekki að grunnskólalögum og við því ber skólanefnd að bregðast. Þessi vinnubrögð rýra traust á eftirlitshlutverki nefndarinnar og ýta undir ótrúverðleika á störfum hennar. Það er ógæfuskref.“
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., samskiptavanda nemenda.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., samskiptavanda nemenda.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., samskiptavanda nemenda.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., samskiptavanda nemenda
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 1. tl., samskiptavanda nemenda.
Fundargerðin er lögð fram.
06
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 10/12 ´20.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., kórónuveiruna Covid-19 og hrósaði nemendum, foreldrum og starfsfólki fyrir að vera lausnamiðuð þegar aðlaga hefur þurft starfið í skólunum að nýjum takmörkunum og breytingum. Sigríður Hulda, ræddi 2. tl., skólastefnu Garðabæjar 2020, 3. tl., samskiptaáætlanir og forvarnir, 4. tl., ytra mat Álftanesskóla, 5. tl., kynningu á starfsemi Álftanesskóla.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók undir þakkarorð í garð nemenda, foreldra og starfsfólks skólanna. Sara Dögg ræddi 2. tl., skólastefnu Garðabæjar 2020.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., skólastefnu Garðabæjar.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., skólastefnu Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., skólastefnu Garðabæjar.
Fundargerðin er lögð fram.
07
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 3/12 ´20.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., tónleikahald á vegum skólans í desember og þakkaði starfsfólki skólans fyrir þeirra þátt í að taka tónleika nemenda upp og streyma til forráðmanna.
Fundargerðin er lögð fram.
08
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 20/11 ´20.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl, útboð á leigubílaakstri í akstursþjónustu fyrir fatlað fólk, 3. tl., samning við FARA AS vegna tafa og 4. tl., samning við Vegagerðina vegna landsbyggðavagna.
Björg Fenger, ræddi 4. tl., samning við Vegagerðina vegna landsbyggðavagna
Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 4. tl., samning við Vegagerðina vegna landsbyggðavagna og svaraði fyrirspurn.
Fundargerðin er lögð fram.
09
Fundargerðir samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 6/11 og 2/12 ´20.
Björg Fenger , ræddi 5. tl., fg. frá 2/12 varðandi nýja heimasíðu og 6. tl., fg frá 2/12 varðandi stöðuna í fjöllunum,
Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., fg 2/12 varðandi skíðaskotfimi.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
10
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 12/11 og 20/11 ´20.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., fg. frá 12/11, minnisblað um umframkostnað, 4. tl. fg. frá 12/11, minnisblað um stöðu í plastmálum, 7. tl., fg. frá 12/11, sláturúrgangsvinnslu í GAJA, 8. tl., mótun áhættustefnu, 1. tl., fg. frá 20/11, minnisblað um útfærslu á eigendasamkomulaginu varðandi urðun í Álfsnesi og 4. tl. fg. frá 20/11, kynningu á Græna viðskiptahraðlinum.
Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi rekstrar - og framkvæmdáætlun Sorpu.
Ingvar Arnarson ræddi 4. tl., fg. frá 12/11, minnisblað um stöðu í plastmálum, 7. tl., fg. frá 12/11, sláturúrgangsvinnslu í GAJA.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi rekstrar - framkvæmdaáætlun Sorpu.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
11
Fundargerðir stjórnar SSH frá 30/11 og 7/12 ´20.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 7. tl., fg. frá 7/12, umferðarljósastýringar á höfuðborgarsvæðinu.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
12
Tillaga um að Garðabær birti fundargerðir verkfunda við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri á heimasíðu Garðabæjar
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fundargerðir verkfunda við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri verði framvegis birtar á heimasíðu Garðabæjar."
Greinagerð
Verkfundir eru liður í stýringu og stjórnun framkvæmda þar sem hittast fulltrúar alverktaka, eftirlitsaðila, verkkaupa og hönnuða, til þess að ræða helstu mál sem uppi eru hverju sinni varðandi framkvæmdirnar. Verkfundir eru að lágmarki á tveggja vikna fresti, sem getur þó breyst eftir ástæðum og framgangi verks. Það að birta fundargerðir er mikilvægur liður í upplýsingagjöf og gefur mikilvæga innsýn inn í þetta stóra verk.
Birting fundargerða verkfunda í stórum verkefnum hefur verið í Hafnarfirði um nokkurt skeið.
Hér má sjá dæmi um verkfund sem er birtur á íbúagátt Hafnarfjarðar:
http://ibuagatt.hafnarfjordur.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=186370701071583068891&meetingid=1910009F &filename=&cc=Document
Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi framkomna tillögu.
Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.