Beint í efni

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 30/11 ´20.

Málsnúmer 2012007F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

19. (878). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., samskiptavanda nemenda og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Fulltrúi Garðabæjarlistans í skólanefnd harmar vinnubrögð Sjálfstæðismanna sem kusu að halda upplýsingum frá skólanefnd, lögbundnum eftirlitsaðila með grunnskólastarfi sveitarfélagsins. Í athugasemdum mennta- og menningarmálaráðuneytisins koma fram alvarlegar ábendingar um að skóli í sveitarfélaginu fari ekki að grunnskólalögum og við því ber skólanefnd að bregðast. Þessi vinnubrögð rýra traust á eftirlitshlutverki nefndarinnar og ýta undir ótrúverðleika á störfum hennar. Það er ógæfuskref.“

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., samskiptavanda nemenda.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., samskiptavanda nemenda.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., samskiptavanda nemenda.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., samskiptavanda nemenda

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 1. tl., samskiptavanda nemenda.

Fundargerðin er lögð fram.