Beint í efni

Tillaga um að Garðabær birti fundargerðir verkfunda við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri á heimasíðu Garðabæjar

Málsnúmer 2012215

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

50. (1958). fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa til bæjarstjóra að láta kanna hvaða reglur og sjónarmið gilda almennt um birtingu verkfundargerða m.t.t. til gagnsæis, skilvirkni og viðkvæmra viðskiptaupplýsinga.

Bæjarráð samþykkir að á vef Garðabæjar verði birtar upplýsingar um framvindu verksins og framvinduskýrslur gerðar aðgengilegar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

19. (878). fundur

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fundargerðir verkfunda við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri verði framvegis birtar á heimasíðu Garðabæjar."

Greinagerð
Verkfundir eru liður í stýringu og stjórnun framkvæmda þar sem hittast fulltrúar alverktaka, eftirlitsaðila, verkkaupa og hönnuða, til þess að ræða helstu mál sem uppi eru hverju sinni varðandi framkvæmdirnar. Verkfundir eru að lágmarki á tveggja vikna fresti, sem getur þó breyst eftir ástæðum og framgangi verks. Það að birta fundargerðir er mikilvægur liður í upplýsingagjöf og gefur mikilvæga innsýn inn í þetta stóra verk.
Birting fundargerða verkfunda í stórum verkefnum hefur verið í Hafnarfirði um nokkurt skeið.
Hér má sjá dæmi um verkfund sem er birtur á íbúagátt Hafnarfjarðar:
http://ibuagatt.hafnarfjordur.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=186370701071583068891&meetingid=1910009F &filename=&cc=Document

Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi framkomna tillögu.

Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.