Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 15/12 ´20.

Málsnúmer 2012026F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

19. (878). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 8. tl., bréf SSH varðandi málefni skíðasvæðanna, 9. tl., bréf SSH varðandi stafrænt ráð sveitarfélaganna, 10. tl., álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis vegna framkvæmda fjarfunda, 11. tl., samning um keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun leikskóla í Urriðaholti, 13. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um umbun til starfsmanna leik- og grunnskóla, 14. tl., tillögu Garðabæjarlistans um að Garðabær innleiði Framfaravogina, mælitæki sem mælir velsæld bæjarbúa og 15. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um uppfærslu rafrænna umsókna og umsóknareyðublaða sveitarfélagsins til samræmis við lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Björg Fenger, ræddi 8. tl., bréf SSH varðandi málefni skíðasvæðanna.

Ingvar Arnarson, ræddi 9. tl., bréf SSH varðandi stafrænt ráð sveitarfélaganna, 11. tl. samning um keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun leikskóla í Urriðaholti 14. tl., tillögu Garðabæjarlistans um að Garðabær innleiði Framfaravogina, mælitæki sem mælir velsæld bæjarbúa og 15. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um uppfærslu rafrænna umsókna og umsóknareyðublaða til samræmis við lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., bréf SSH varðandi erindi Fjölsmiðjunnar um fjárstuðning, 8. tl., bréf SSH varðandi málefni skíðasvæðanna, 9. tl., bréf SSH varðandi stafrænt ráð sveitarfélaganna, 11. tl., samning um keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun leikskóla í Urriðaholti og 13. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um umbun til starfsmanna leik- og grunnskóla.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 11. tl., samning um keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun leikskóla í Urriðaholti.

Almar Guðmundsson, rædd 7. tl., bréf SSH varðandi erindi Fjölsmiðjunnar um fjárstuðning, 9. tl., bréf SSH varðandi stafrænt ráð sveitarfélaganna, 14. tl., tillögu Garðabæjarlistans um að Garðabær innleiði Framfaravogina, mælitæki sem mælir velsæld bæjarbúa og 15. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um uppfærslu rafrænna umsókna og umsóknareyðublaða til samræmis við lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.