Álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins vegna framkvæmd fjarfunda, dags. 07.12.20.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
49. (1957). fundur
Lagt fram álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þar sem því er beint til sveitarstjórna að viðhafa beina vefútsendingu frá fundum sveitarstjórna sem haldnir eru með fjarfundarbúnaði.
Garðabær virðir álit ráðuneytisins og hlítir niðurstöðu þess. Það vekur hins vegar undrun að ráðuneytið hafið valið þá leið að fjalla um málið í almennu áliti og boða frekari fyrirmæli vegna málsins þegar það lá fyrir þegar álitið var birt að fundur bæjarstjórnar Garðabæjar hafði verið sendur út í beinu vefstreymi.
Þá þykir rétt að benda á að samkvæmt auglýsingu ráðuneytisins varðandi heimild til að nota fjarfundarbúnað á fundum sveitarstjórnar er vikið frá tilteknum skilyrðum í 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011 þar sem fjallað er um fjarfundi en ákvæðið mælir ekki fyrir um að fjarfundir skulu vera í beinu streymi á vef sveitarfélags.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02