46. (1954). fundur
46. (1954). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
24.11.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
COVID-19 - hættustig almannavarna.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi almannavarna sem haldinn var sl. föstudag. Reglur um hertar takmarkanir á samkomum og skólahaldi gilda til 2. desember nk.
Kynntar voru nýjar reglur um að draga úr takmörkun á skólastarfi í tónlistarskólum og auka þannig svigrúm til tónlistarkennslu. Tónlistarskólum verður heimilt að sinna einstaklingskennslu en halda skal 2 metra reglu milli starfsfólks og nemenda. Hámarksfjöldi verður sambærilegur og í grunnskólum; 25 hjá eldri nemendunum, þ.e. í 8.?10. bekk en 50 hjá yngri nemendum. Tveggja metra reglan gildir um nemendur í 8.?10. bekk en ef víkja þarf frá henni skulu notaðar andlitsgrímur.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálstjóri gerðu grein fyrir stöðu mála á sínum sviðum. Félagsmálastjóri fór yfir nýjar tölum varðandi atvinnuleysi.
Rætt um að hafa á dagskrá næsta fundar bæjarráðs greinargerð frá starfshópi sem skipaður var til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í Covid-19.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir og Jóna Sæmundsdóttir og voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-2.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-2.
Málsnúmer 2006130
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 (2021-2024).
Bæjarstjóri kynnti að drög að gjaldskrám sem hafa verið vistaðar fundargáttinni og verða á dagskrá bæjarstjórnar 3. desember nk.
Málsnúmer 2009388
03
Kinnargata 35 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Stéttarfélaginu ehf., kt. 681206-0510, leyfi til að byggja parhús að Kinnargötu 35.
Málsnúmer 2009387
04
Kinnargata 37 -Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Stéttarfélaginu ehf., kt. 681206-0510, leyfi til að byggja parhús að Kinnargötu 37.
Málsnúmer 2011218
05
Erindi Alanó klúbbsins varðandi fjárstuðning, dags. 03.11.20.
Bæjarráð vísar erindinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.
Málsnúmer 2011231
06
Tilkynning frá Skipulagsstofnun varðandi kynningu á tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026, dags. 13.11.20.
Bæjarráð vísar málin til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 2011353
07
Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2019.
Lögð fram.
Málsnúmer 2011337
08
Hvatningabréf ASÍ o.fl. til sveitarstjórnarfólks um allt land varðandi styttingu vinnutíma í dagvinnu, dags. 18.11.20.
Málsnúmer 2011333
09
Bréf Mótás hf. varðandi framsal lóðarréttinda að lóðinni nr. 10 við Eskiás, dags. 18.11.20.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindi Mótáss hf., kt. 580489-1259 um framsal lóðarréttinda lóðarinnar Eskiás 10 til Mótáss Garðabæjar ehf., kt. 501286-1419, sem er eigandi lóðarréttinda allra annarra lóða við Eskiás.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2011213
10
Tilkynning frá ÚUA varðandi kæru á ákvörðun um óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Aratún 36, dags. 12.11.20.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2011355
11
Bréf svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins varðandi fjárhagsáætlun 2021, dags. 17.11.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 og til kynningar í skipulagsnefnd.
Málsnúmer 2011370
12
Tillaga um að streyma fjarfundum bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að fundum bæjarstjórnar sem haldnir eru með fjarfundarbúnaði verði streymt beint.
Málsnúmer 2011338
13
Bréf Soroptimistaklúbbs Hafnarfjarðar og Garðabæjar varðandi átak gegn ofbeldi gagnvart konum, dags. 18.11.20.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til úrlausnar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2011372
14
Umsókn Stjörnunnar um leyfi fyrir áramótabrennu 2020.
Bæjarráð vísar umsókninni til bæjarstjóra en vegna reglna um takmörkun á samkomuhaldi sem takmarkar hversu margir geta komið saman er ólíklegt að leyfi verði veitt fyrir hefðbundnum áramótabrennum.
Málsnúmer 2011331
15
Bréf Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi fyrirspurn um framkvæmd fjarfunda, dags. 16.11.20.
Málsnúmer 2011360
16
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um fiskeldi, (vannýttur lífmassi í fiskeldi), 265. mál, dags. 18.11.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2011327
17
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, málsmeðferð o.fl., 276. mál, dags. 17.11.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2011321
18
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum, 81. mál, dags. 17.11.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2011326
19
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010, uppbygging innviða og íbúðarhúsnæðis, 275. mál., dags. 18.11.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2011359
20
Bréf Alþings varðandi tillögu til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega, 187. mál, dags. 18.11.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2011361
21
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, 240. mál, dags. 18.11.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2011378
22
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um menntastefnu 2020-2030, 278. mál, dags. 19.11.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2011377
23
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019 (sveitarfélag fyrsta lögheimilis), 82. mál, dags. 19.11.20.
Lagt fram.