Málefni skíðasvæðanna
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
19. (878). fundur
Bæjarstjórn samþykkir viðauka II við samkomulag um endurnýjun á uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7. maí 2018, enda verði hann samþykktur í öllum aðildarsveitarfélögunum. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að undirrita samninginn. (Mál nr. 2012149)
Bæjarráð Garðabæjar
02
49. (1957). fundur
Á fund bæjarráð kom Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH og gerði grein fyrir minnisblaði verkefnahóps um uppbyggingu og rekstur á skíðasvæðunum ásamt viðauka II við samkomulag um endurnýjun á uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7. maí 2018. Í viðaukanum koma fram breytingar á tímasetningu framkvæmda og áætluðum framkvæmdakostnaði.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka II við samkomulag um endurnýjun á uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7. maí 2018, enda verði hann samþykktur í öllum aðildarsveitarfélögunum.