Tillaga Garðabæjarlistans um gerð meginreglna um íbúalýðræði og endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (879). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Bæjarstjórn samþykkir að sveitarfélagið setji sér meginreglur um íbúalýðræði og taki lýðræðisstefnu Garðabæjar frá 2010 til endurskoðunar."
Greinargerð
Núgildandi lýðræðisstefna Garðabæjar var samþykkt af bæjarstjórn 6. maí 2010 því er langt um liðið og því tímabært að endurskoða stefnuna. Í stefnunni sjálfri kemur m.a. fram að það beri að meta stefnuna reglulega.
Þegar lýðræðisstefna Garðabæjar er rýnd, sem eins og fram kemur í tillögunni er samþykkt í maí 2010, má sjá að hún ber þess merki að vera barns síns tíma og um leið að vera fyrstu skrefin í slíkri vinnu sveitarfélagsins.
Næsta skref í átt að auknu íbúalýðræði er að setja sér meginreglur eins og gert er grein fyrir í handbók sveitarfélaganna um íbúalýðræði.
Almar Guðmundsson, tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun.
"Á fundi fjölskylduráðs Garðabæjar þann 13. nóvember 2019 var samþykkt að hefja vinnu við endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar, þar sem m.a. yrði fjallað sérstaklega um samráð og íbúakosningar. Starfshópur var settur saman sem samanstóð af hópi starfsmanna þvert á svið bæjarins. Vinna hófst í upphafi síðasta árs og var hún kynnt bæjarbúum á ýmsan hátt. M.a. var samráðsgátt opnuð þar sem íbúar gátu sent inn ábendingar og tillögur um leiðir til lýðræðis. Vinnu við gerð stefnunnar var frestað í apríl 2020 vegna heimsfaraldurs. Fjölskylduráð samþykkti í október sl. að hefja vinnuna aftur og hefur verið einhugur um málið innan ráðsins frá byrjun. Stefnt er að því að henni ljúki á þessu ári.
Í ljósi ofangreinds er eðlilegt að hafna framkominni tillögu."
Ingvar Arnarson, tók til máls um framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Farmkomin tillaga er felld með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).