Víkurgata 1-7, dsk breyting
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (879). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 1-7, þar sem sótt er um að skipta neðsta húsinu í raðhúsaröðinni í tvær íbúðir. Fyrir liggur neikvæð umsögn deiliskipulagshöfunda. (Mál nr. 2011173)
Bæjarráð Garðabæjar
02
50. (1958). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 1-7, þar sem sótt er um að skipta neðsta húsinu í raðhúsaröðinni í tvær íbúðir. Fyrir liggur neikvæð umsögn deiliskipulagshöfunda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
13. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að neðsta hús í raðhúsaröðinni verði skipt í tvær íbúðir. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfunda.
Með vísan í umsögnina er tillögunni hafnað.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
13. fundur
Lögð fram fyrirspurn um fjölgun íbúða við Víkurgötu 1-7 um eina.
Vísað til umsagnar hjá deiliskipulagsráðgjafa og Urriðaholti ehf.