Beint í efni

Blikanes 22 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2010462

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda. (Mál nr. 2010462)

Gunnar Einarsson vék af fundi við afgreiðslu tillögunnar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

50. (1958). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Gunnar Einarsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

13. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð vegna viðbyggingar. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

12. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

13. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til norðausturs vegna viðbyggingar við norðurálmu íbúðarhúss.
Skipulagsstjór metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal eigendum Blikaness 19,20,21 og 24 sem og Tjaldaness 17.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.