Beint í efni

Asparlundur 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2009161

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir girðingum á lóðarmörkum. Samkomulag hefur náðst á milli lóðarhafa á Asparlundi 2 og Asparlundi 4 og hæð girðingar.
Skipulagsnefnd telur að hæð og útfærsla girðingar á lóðarmörkum að götu þurfi að skoða betur.
Vísað til frekari skoðunar.
Tækni- og umhverfissviði falið að móta tillögu að viðmiðunarreglum fyrir girðingar og skjólveggi í Garðabæ.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir girðingu á lóðarmörkum, steypt að neðan en úr timbri að ofan. Hæð hennar er að hluta talsvert meira en 1,8 m yfir landi. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.