Endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (911). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að ekki sé ástæða til að endurskoða gildandi aðalskipulag Garðabæjar nú í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar. Aðalskipulag Garðabæjar 2016 - 2030 skal halda gildi sínu. Ákvörðun bæjarstjórnar skal tilkynnt Skipulagsstofnun. (Mál nr. 2206336)
Bæjarráð Garðabæjar
02
39. (2046). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að ekki sé þörf á að endurskoða gildandi aðalskipulag Garðabæjar nú í upphafi nýs kjörtímabils bæjarstjórnar. Aðalskipulag Garðabæjar 2016 - 2030 skal halda gildi sínu.
Ákvörðun bæjarstjórnar skal tilkynnt Skipulagsstofnun.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Í ákvæði 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 kemur fram að sveitarstjórnum beri að loknum sveitarstjórnarkosningum að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins.
Málið hefur verið tekið fyrir í bæjarráði sem vísaði því til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
Núgildandi Aðalskipulag Garðabæjar gildir fyrir tímabilið 2016-2030. Það tók gildi með auglýsingu í B-deild stjórnartíðinda 4. maí 2018 og er því liðið á hálft fjórða ár af gildistíma gildandi aðalskipulags.
Í 4.mgr.28.gr.Skipulagslaga segir að í aðalskipulagi skuli marka stefnu til a.m.k tólf ára.
Heildarendurskoðun aðalskipulags er stórt og umfangsmikið verkefni þar sem að fjölmargir þættir eru undir hverju sinni. Það getur því verið æskilegt að á milli þess að aðalskipulag er endurskoðað í heild sinn sé unnið að breytingum þar sem að meiri tími gefst til að móta ákveðna málaflokka og er þá hægt að taka þá hluta beint inn í endurskoðað aðalskipulag þegar að því kemur.
Skipulagsnefnd hefur nú þegar ákveðið að ráðast í endurskoðun á þeim hluta aðalskipulags sem fjallar um Samgöngu-og þjónustukerfi (4.kafli)og er undirbúningur þeirrar vinnu hafinn. Þar verður lögð megin áhersla á endurskoðun stígakerfis og almenningssamganga þar sem vistvænar samgöngur verða hafðar að leiðarljósi.
Skipulagsnefnd telur að ekki sé ástæða til þess að Aðalskipulag Garðabæjar verði tekið til endurskoðunar í heild sinni á kjörtímabilinu 2022-2026.
Bæjarráð Garðabæjar
04
23. (2030). fundur
Í ákvæði 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 kemur fram að sveitarstjórnum beri að loknum sveitarstjórnarkosningum að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.