Hliðsvegur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (911). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hliðs í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við veitingahús að Hliði. Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun þar sem lóðin liggur að friðlýstum fólkvangi. (Mál nr. 2207473)
Bæjarráð Garðabæjar
02
39. (2046). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hliðs í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við veitingahús að Hliði. Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun þar sem lóðin liggur að friðlýstum fólkvangi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Lögð fram umsókn að breytingu deiliskipulags Hliðs á Álftanesi sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur veitingahúss lengist um 3,3 m til vesturs að lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hliðs í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal Umhverfisstofnun þar sem að fólkvangurinn að Hliði umlykur lóð ferðaþjónustunnar.