Samningur við menningar- og viðskiptaráðuneytið um Hönnunarsafn Íslands.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (914). fundur
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir samningi við menningar og viðskiptaráðuneytið um ráðstöfun rekstrarframlags til Hönnunarsafns Íslands og lagði fram eftirfarandi tillögu að samþykkt.
„Bæjarstjórn lýsir ánægju með að fyrir liggur formlegur samningur um rekstrarframlög til Hönnunarsafns Íslands. Starfsemi safnsins hefur vaxið svo eftir er tekið og hefur Garðabær staðið myndarlega við bakið á rekstri safnsins. Bæjarstjórn skorar á menningar- og viðskiptaráðherra að auka hlutdeild ríkisins í rekstri safnsins og standa við ákvæði í samningi frá því desember 2006 um afgreiðslu á stofnframlagi til safnsins“.
Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls.
„Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning við menningar- og viðskiptaráðuneytið um rekstrarframlög til Hönnunarsafn Íslands og felur bæjarstjóra undirritun hans.“
Bæjarráð Garðabæjar
02
45. (2052). fundur
Bæjarráð fagnar því að fyrir liggur formlegur samningur um rekstrarframlög til Hönnunarsafns Íslands. Starfsemi safnsins hefur vaxið svo eftir er tekið og hefur Garðabær staðið myndarlega við bakið á rekstri safnsins. Bæjarráð skorar á menningar- og viðskiptaráðherra að auka hlutdeild ríkisins í rekstri safnsins og standa við ákvæði í samningi frá því desember 2006 um afgreiðslu á stofnframlagi til safnsins.
Bæjarráð vísar drögum að samningi við menningar- og viðskiptaráðuneytið um Hönnunarsafn Íslands til afgreiðslu bæjarstjórnar.