Urriðaholtsstræti 9-15 - bílastæði - Fyrirspurn til tækni og umhverfissviðs
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (914). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis fyrir fjölbýlishúsið að Urriðaholtsstræti 9-15 þó að vikið sé frá ákvæðum skilmála hvað varðar skiptingu bílastæða á lóð og í bílageymslu enda er uppfyllt krafa um heildarfjölda bílastæða. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“ [Mál nr. 2211275]
Bæjarráð Garðabæjar
02
45. (2052). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis fyrir fjölbýlishúsið að Urriðaholtsstræti 9-15 þó að vikið sé frá ákvæðum skilmála hvað varðar skiptingu bílastæða á lóða og í bílageymslu enda er uppfyllt krafa um heildarfjölda bílastæða. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
12. fundur
Lögð fram fyrirspurn um ákvæði um fjölda bílastæða á landi eða bílageymslu. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað fjölda og skiptingu bílastæða varðar eins og fyrirspurn lýtur að.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Lögð fram fyrirpurn lóðarhafa um fyrirkomulag bílastæða sem víkur lítillega frá deiliskipulagsákvæðum. Skipulagsnefnd vísar fyrirspurn til umsagnar deiliskipulagshöfundar Urriðaholts Norðurhluta 4 og Urriðaholts ehf.