Beint í efni

13 (22-26). fundur

11.10.2023
Umhverfisnefnd Garðabæjar

13 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

11.10.2023

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
  • Einar Þór Einarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Linda Björk Jóhannsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2309507

01

Hvítbók um skipulagsmál í samráðsgátt.

Lögð fram tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi hvítbók um skipulagsmál sem kynnt hefur verið í samráðsgátt.

Málsnúmer 2309626

02

Uppbygging innviða vegna orkuskipta

Lagt fram bréf umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að unnin verði stefna um orkuskipti og áætlun um dreifingu og uppsetningu hleðslustöðva í Garðabæ.

Málsnúmer 2310127

03

Veiðikortið 2024

Umhverfisnefnd samþykkir áframhaldandi samstarf við Veiðikortið fyrir árið 2024.

Málsnúmer 2310125

04

Útikennsla við Vífilsstaðavatn 2023

Fyrirkomulag útikennslu sem fór fram við Vífilsstaðavatn í byrjun október kynnt. Umhverfisnefnd Garðabæjar hefur síðan árið 1999 boðið grunnskólum bæjarins upp á útikennslu um lífríki Vífilsstaðavatns. Kennslan við vatnið er liður í náttúrufræðikennslu skólanna. Bjarni Jónsson, fiskifræðingur hefur séð um útikennsluna öll árin, honum til aðstoðar er starfsfólk garðyrkjudeildar.

Málsnúmer 2310124

05

Matjurtagarðar

Matjurtagarðar í Garðabæ kynntir. Garðbæingum gefst kostur á að leigja garða og matjurtakassa til ræktunar matjurta í Hæðahverfi, á Álftanesi og í

Urriðaholti. Börnum og eldri borgurum gefst jafnframt kostur á að leigja garð í skólagörðum í Silfurtúni.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2206112

06

Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026)

Umhverfisnefnd leggur fram tillögur til fjárhagsáætlunar 2024.

Málsnúmer 2310133

07

Sorphirðumál

Farið var yfir hvernig innleiðing sem hófst í vor hefur gengið, á nýju samræmdu flokkunarkerfi á heimilisúrgangi í samvinnu við nágrannasveitarfélög. Breytingin er liður á löggjöf um breytta úrgangsmeðhöndlun sem tók gildi þann 1. janúar sl. Með breyttu fyrirkomulagi kveða lögin á um að skylt verður að safna við öll heimili lífrænum eldhúsúrgangi, blönduðum úrgangi, plasti, pappír og pappa. Til viðbótar við þessa fjóra flokka verður frekari söfnun á grenndarstöðvum þar sem gleri, málmum og textíl verður einnig safnað til viðbótar við pappír, pappa og plastumbúðir. Flokkun úrgangs er stórt umhverfisverkefni þar sem öll heimili koma að því að flokka úrgang sem berst frá heimilum, mikilvægt er að endurnýta það sem hægt er og sporna þannig gegn ágangi á auðlindir jarðar. Við flokkun er efnunum aftur komið inn í hringrásina og þannig hægt að draga úr úrgangsmyndun.