Sorphirðumál
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
13 (22-26). fundur
Farið var yfir hvernig innleiðing sem hófst í vor hefur gengið, á nýju samræmdu flokkunarkerfi á heimilisúrgangi í samvinnu við nágrannasveitarfélög. Breytingin er liður á löggjöf um breytta úrgangsmeðhöndlun sem tók gildi þann 1. janúar sl. Með breyttu fyrirkomulagi kveða lögin á um að skylt verður að safna við öll heimili lífrænum eldhúsúrgangi, blönduðum úrgangi, plasti, pappír og pappa. Til viðbótar við þessa fjóra flokka verður frekari söfnun á grenndarstöðvum þar sem gleri, málmum og textíl verður einnig safnað til viðbótar við pappír, pappa og plastumbúðir. Flokkun úrgangs er stórt umhverfisverkefni þar sem öll heimili koma að því að flokka úrgang sem berst frá heimilum, mikilvægt er að endurnýta það sem hægt er og sporna þannig gegn ágangi á auðlindir jarðar. Við flokkun er efnunum aftur komið inn í hringrásina og þannig hægt að draga úr úrgangsmyndun.