Beint í efni

42. (2049). fundur

22.11.2022
Bæjarráð Garðabæjar

42. (2049). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

22.11.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2206112

01

Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026).

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir minnisblaði Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi nýja spá Hagstofu og forsendur fyrir áætlunargerð.

Í minnisblaðinu kemur fram að frá því að spá Hagstofunnar var gefin út í júní sl. hafa efnahagsforsendur breyst nokkuð. Þar er fyrst og fremst um að ræða mun meiri verðbólgu í ár og á næstu árum en júní spáin sagði til um. Hagstofa spáir að verðbólga á næsta ári verði 5,6% í stað 4,9% í júníspánni. Spáin um launavísitölu er einnig hækkuð, úr 5,5% í 5,9%. Atvinnuleysi telur stofnunin að verði ívið meiri en fyrri spá sagði til um.

Útsvarsáætlanir sem sambandið hefur gefið út hafa ekki verið uppfærðar .Á móti meiri hækkun launavísitölu vegur meira atvinnuleysi að nokkru. Gera má þannig ráð fyrir að hækkun útsvarsstofn verði lítillega meiri en áður var reiknað með.

Bæjarstjóri fór yfir mögulegar breytingar milli umræðna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2001131

02

Aratún 36 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Stefaníu Sif W. Dison, kt. 260775-5619, leyfi til að byggja bílskúr og stækka núverandi hús við Aratún 36.

Málsnúmer 2210335

03

Opnun tilboða í útvegun á götusalti fyrir Garðabæ.

Lagt fram tilboð sem bárust í útvegun á götusalti fyrir Garðabæ.

Saltkaup ehf. kr. 162.823.500

Kostnaðaráætlun kr. 144.000.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Saltkaupa ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2204062

04

Minnisblað um grænmetis- og ávaxtastund í grunnskólum.

Lagt fram minnisblað fræðslu- og menningarsviðs sem gert er samkvæmt tillögu sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. apríl 2022.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2211201

05

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi drög að reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga í samráðsgátt, dags. 11.11.22.

Lögð fram.

Málsnúmer 2211186

06

Erindi Umhverfisstofnunar varðandi samstarf um kortlagningu hávaða 2022, dags. 10.11.22.

Bæjarráð samþykkir þátttöku Garðabæjar í samstarfi við Vegagerðina og Umhverfisstofnun við kortlagningu hávaða og tilnefnir Guðbjörgu Brá Gísladóttur, sviðsstjóra umhverfissviðs sem tengilið Garðabæjar.

Málsnúmer 2211276

07

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til reksturs veitingastaðar að Garðatorgi 4b.

Lögð fram umsókn MHG10 ehf., kt. 580822-0880 um leyfi til reksturs veitingastaðar að Garðatorgi 4 b.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt en með því skilyrði að afgreiðslutími áfengis verði til 23:00 en ekki miðnættis eins og fram kemur í umsókninni. Bæjarráð getur ekki fallist á að leyfi verði veitt til útiveitinga þar sem ekki er til þess heimild í deiliskipulagi. Tillaga um breytingu á deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir heimild til útbúa útisvæði við veitingahús og verslanir við Garðatorg 4 og 6 hefur verið grenndarkynnt og er til meðferðar hjá skipulagsnefnd.

Málsnúmer 2211329

08

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í skötuveislu í Íþróttamiðstöð Álftaness.

Lögð fram umsókn Lionsklúbbs Álftaness um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga í skötuveislu á Þorláksmessu 23. desember 2022.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2211279

09

Bréf Golfklúbbsins Odds varðandi aðstoð við leigu á íþróttamannvirki og stuðning við framkvæmd á Íslandsmóti í golfi, dags. 14.11.22.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar

Málsnúmer 2211277

10

Bréf Garðakórsins varðandi styrk til starfsemi kórsins, dags. 31.10.22.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2023.

Málsnúmer 2111108

11

Bréf Siglingaklúbbsins Vogs varðandi aðstöðu við Arnarnesvog, dags. 03.11.22.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.