Beint í efni

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til reksturs veitingastaðar að Garðatorgi 4b.

Málsnúmer 2211276

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

42. (2049). fundur

Lögð fram umsókn MHG10 ehf., kt. 580822-0880 um leyfi til reksturs veitingastaðar að Garðatorgi 4 b.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt en með því skilyrði að afgreiðslutími áfengis verði til 23:00 en ekki miðnættis eins og fram kemur í umsókninni. Bæjarráð getur ekki fallist á að leyfi verði veitt til útiveitinga þar sem ekki er til þess heimild í deiliskipulagi. Tillaga um breytingu á deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir heimild til útbúa útisvæði við veitingahús og verslanir við Garðatorg 4 og 6 hefur verið grenndarkynnt og er til meðferðar hjá skipulagsnefnd.