Beint í efni

Minnisblað um grænmetis- og ávaxtastund í grunnskólum.

Málsnúmer 2204062

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

42. (2049). fundur

Lagt fram minnisblað fræðslu- og menningarsviðs sem gert er samkvæmt tillögu sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. apríl 2022.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

6. (902). fundur

Ingvar Arnarson kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu er hann flytur ásamt Hörpu Þorsteinsdóttur, Björg Fenger og Sigríði Huldu Jónsdóttur.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela fræðslu- og menningarsviði að taka saman minnisblað um fýsileika þess að bjóða nemendum upp á grænmetis- og ávaxtastund í grunnskólum bæjarins. Minnisblaðið verði tekið til umræðu við gerð fjárhagsáætlun fyrir árið 2023."

Greinargerð
Með því að bjóða upp á grænmetis- og ávaxtastund (nesti) er létt undir með barnafjölskyldum. Grænmetis- og ávaxtastund kemur í staðinn fyrir nestistíma og þurfa nemendur þ.a.l. ekki að mæta með nesti í skólann.
Hafa skal samráð við skólastjórnendur og ungmennaráð um framkvæmd og fýsileika ofangreindrar tillögu.
Garðabær er heilsueflandi bæjarfélag þar sem stuðlað er að því að börn uppfylla ráðleggingar um næringu. Í aðgerðaráætlun með lýðheilsu og forvarnarstefnu Garðabæjar kemur fram að bæta þurfi framboð af hollum mat í mötuneytum skóla. Lýðheilsuaðgerð sem þessi er til þess fallin að auka neyslu á grænmeti og ávöxtum. Í skólum bæjarins er mikilvægt að huga að fæðuvenjum barna og með þessu getum við lagt grunninn að mataræði sem hefur áhrif á andlega og líkamlega heilsu til framtíðar.
Ingvar Arnarson
Harpa Þorsteinsdóttir
Sigríður Hulda Jónsdóttir
Björg Fenger

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls um framlagða tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu.