Opnun tilboða í útvegun á götusalti fyrir Garðabæ.
Málsnúmer 2210335
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
42. (2049). fundur
Lagt fram tilboð sem bárust í útvegun á götusalti fyrir Garðabæ.
Saltkaup ehf. kr. 162.823.500
Kostnaðaráætlun kr. 144.000.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Saltkaupa ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.