Beint í efni

41 (2094). fundur

31.10.2023
Bæjarráð Garðabæjar

41 (2094). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

31.10.2023

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2307150

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 (2024-2027)

Bæjarstjóri fór almennt yfir meginatriði varðandi vinnu við gerð frumvarps að fjárhagsáætlun 2024.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fundi bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2024 og árin 2025 - 2027, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti.

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2024 eru:

Heildartekjur 28.583.509 þkr.

Heildargjöld 24.095.645 þkr.

Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir 4.487.864 þkr.

Afskriftir (1.745.190) þkr.

Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda 2.742.674 þkr.

Fjármunatekjur (fjármagngjöld) (2.163.873) þkr.

Rekstrarniðurstaða 578.800 þkr.

Framkvæmdir - samtals A og B hluti 4.977.000 þkr.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 (2024-2027) til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð fimmtudaginn 2. nóvember 2023.

Málsnúmer 2206112

02

Fjárhagsáætlun 2023 - lántaka.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 1.000.000.000. Lánið er til 7 ára og endurgreitt með einni afborgun í lok lánstíma 2. nóvember 2030. Lánið er bundið vísitölu neysluverðs til verðtryggingar með grunnvísitölu í nóvember 2023 sem er 599,9 stig. Vextir eru verðtryggðir og reiknast af höfuðstól lánsins frá útborgunardegi. Vextirnir eru 3,70% árlegir og eru fastir allan lánstímann.

Í skilmálum lánssamnings kemur fram að tilgangur lánsins er fjármögnun á verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, nánar tiltekið fjármögnun framkvæmda við byggingu Urriðaholtsskóla. Fyrir liggja drög að lánssamningi nr. 2311_50.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2310517

03

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi vegna villibráðakvölds í Miðgarði.

Lögð fram umsókn UMF-Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi í Miðgarði á villibráðakvöldi sem halda á 3. nóvember 2023.

Bæjarráð gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2310518

04

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi vegna herrakvölds í Miðgarði.

Lögð fram umsókn UMF-Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi í Miðgarði á herrakvöldi sem halda á 17. nóvember 2023.

Bæjarráð gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2305185

05

Bréf Hestamannafélagsins Spretts varðandi reiðvegamál í upplandi Garðabæjar, dags. 18.10.23.

Í bréfinu er farið fram á að tryggt verði fjármagn í fjárhagsáætlun 2024 til uppbyggingar reiðstíga í upplandi Garðabæjar.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2024.

Málsnúmer 2310607

06

Fyrirspurn Viðreisnar um upplýsingar um samanburð á launum karla og kvenna í stjórnunarstörfum jafnt sem öðrum störfum Garðabæjar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar gerði grein fyrir fyrirspurninni og kallaði eftir samanburði á launum stjórnenda og eftir atvikum annarra starfsheita.

Bæjarstjóri upplýsti að fyrir liggur vottað jafnlaunakerfi sem Garðabær starfrækir sem nær til allra starfsmanna sveitarfélaga.

Bæjarráð vísar fyrirspurninni til bæjarstjóra.

Málsnúmer 2310590

07

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla (kristinfræðikennsla), 47. mál., dags. 26.10.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2209604

08

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi hækkun á útgjaldajöfnunarframlögum sjóðsins árið 2023, dags. 26.10.23.

Í fylgiskjali með tilkynningunni kemur fram að áætlað framlag til Garðabæjar árið 2023 er 187,6 mkr. sem er hækkun um 23,5 mkr. frá fyrri áætlun.

Málsnúmer 2310598

09

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi framlög Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2024, dags. 26.10.23.

Í fylgiskjali með tilkynningunni kemur fram að áætlað framlag til Garðabæjar árið 2024 er 1.285,2 mkr.

Málsnúmer 2310487

10

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum til eflingar á brunavörnum og öryggi fólks sem hefur fasta búsetu í atvinnuhúsnæði, dags. 20.10.23.

Lögð fram tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi birtingu frumvarps til laga um breytingar á ýmsum lögum til eflingar á brunavörnum og öryggi fólks sem hefur fasta búsetu í atvinnuhúsnæði. Í frumvarpinu er lagt til að þeim sem hafi fasta búsetu í atvinnuhúsnæði og eru skráðir ótilgreint í hús í sveitarfélaginu bjóðist að skrá sig með sérstakt aðsetur hjá Þjóðskrá Íslands. Jafnframt verði lögð ábyrgð á eiganda atvinnuhúsnæðis og íbúðarhúsnæðis að tilkynna til Þjóðskrár Íslands hverjir búi í atvinnuhúsnæði á hans vegum.

Málsnúmer 2305031

11

Fundargerðir 8. og 9. fundar stefnuráðs byggðasamlaganna frá 19/6 og 6/10 ´23.

Lagðar fram.