Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum til eflingar á brunavörnum og öryggi fólks sem hefur fasta búsetu í atvinnuhúsnæði, dags. 20.10.23.
Málsnúmer 2310487
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
41 (2094). fundur
Lögð fram tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi birtingu frumvarps til laga um breytingar á ýmsum lögum til eflingar á brunavörnum og öryggi fólks sem hefur fasta búsetu í atvinnuhúsnæði. Í frumvarpinu er lagt til að þeim sem hafi fasta búsetu í atvinnuhúsnæði og eru skráðir ótilgreint í hús í sveitarfélaginu bjóðist að skrá sig með sérstakt aðsetur hjá Þjóðskrá Íslands. Jafnframt verði lögð ábyrgð á eiganda atvinnuhúsnæðis og íbúðarhúsnæðis að tilkynna til Þjóðskrár Íslands hverjir búi í atvinnuhúsnæði á hans vegum.