5. (2058). fundur
5. (2058). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
31.01.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2212136
01
Aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði.
Sviðsstjóri umhverfissviðs upplýsti að verið er að bíða eftir niðurstöðum greiningar úr síðustu sýnatökum sem eru liður í heildarúttekt á húsnæði Flataskóla og Hofsstaðaskóla. Framkvæmd var sótthreinsun í húsnæði skólanna um síðustu helgi. Fram kom að unnið er að undirbúningi uppsetningar á lausum kennslustofum á skólasvæði við Flata- og Garðaskóla ásamt því að verið er að skoða aðra tímabundna valkosti varðandi húsnæði fyrir skólana. Sagt var frá því að starfsemi leikskóladeildar Flataskóla hefur verið færð í Urriðaból í Kauptúni.
Málsnúmer 2206112
02
Fjárhagsáætlun 2023 - lántaka.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 600.000.000. Lánið er jafngreiðslulán til 17 ára, verðtryggt með 3,05% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar. Í skilmálum lánssamnings kemur fram að tilgangur lánsins er fjármögnun á verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu og uppfyllir skilyrði sem sett eru fram í grænni umgjörð sjóðsins, nánar tiltekið fjármögnun á byggingu svansvottaðs leikskóla. Verkefnið telst þess eðlis að hafa jákvæð áhrif á umhverfið og sporna gegn loftslagsbreytingum. Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar. Fyrir liggja drög að lánssamningi.
Málsnúmer 2212134
03
Aratún 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Emil Steindóri Friðfinnssyni, kt. 121266-5129, leyfi til að stækka bílgeymslu við einbýlishúsið að Aratúni 4.
Málsnúmer 2208590
04
Sunnuflöt 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir að afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Siggeiri Fannari Brynjólfssyni, kt. 080180-5869, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Sunnuflöt 21.
Málsnúmer 2301579
05
Bréf Garðaálfa, kórs eldri borgara á Álftanesi um styrk árið 2023.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2023
Málsnúmer 2301592
06
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi boðun á XXXVIII. landsþing sambandsins, dags. 26.01.23.
Í bréfinu er boðað til XXXVIII. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga föstudaginn 31. mars 2023.
Málsnúmer 2301589
07
Erindi félags- og vinnumarkaðsráðuneytis varðandi fyrirspurn frá Alþingi um þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk á heimili sínu, félagslegt húsnæði og önnur búsetuúrræði, dags. 23.01.23.
Um er að ræða erindi á grundvelli þriggja skriflegra fyrirspurna sem lagðar hafa verið fram á Alþingi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að svara erindi ráðuneytisins.
Málsnúmer 2204292
08
Drög að samningi við Lækjarkór um uppbyggingu íbúðarbyggðar við Víðiholt á Álftanesi.
Um er að ræða samning við landeiganda um uppbyggingu íbúðarbyggðar samkvæmt deiliskipulagi við Víðiholt á Álftanesi. Gert er ráð fyrir tveimur fjölbýlishúsum með samtals 50 íbúðum og 20 raðhúsum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Málsnúmer 2301596
09
Tilkynning um hækkun viðmiðunarfjárhæða tekju- og eignamarka vegna félagslegs húsnæðis.
Lögð fram tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi hækkun tekju- og eignamarka vegna sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir árið 2023. Bæjarráð samþykkir að hækka viðmið um hámark sérstaks húsnæðisstuðnings samkvæmt 4. gr. reglna Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning um sama hlutfall og hækkun tekju- og eignamarka ráðuneytisins eða úr kr. 90.200 í 102.500.
Málsnúmer 2301608
10
Erindi mennta- og barnamálaráðuneytis varðandi gagnaöflun til sveitarfélaga um rakaskemmdir í leik- og grunnskólum, dags. 20.01.23.
Um er að ræða erindi sem sent er að beiðni Alþings til sveitarfélaga um gagnaöflun í framhaldi af skýrslu um tjón af völdum rakaskemmda og myglusvepps í leiks- og grunnskólum og áhrif þeirra á starfsemi og heilsu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara spurningarlista ráðuneytisins.