Tilkynning um hækkun viðmiðunarfjárhæða tekju- og eignamarka vegna félagslegs húsnæðis.
Málsnúmer 2301596
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
5. (2058). fundur
Lögð fram tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi hækkun tekju- og eignamarka vegna sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir árið 2023. Bæjarráð samþykkir að hækka viðmið um hámark sérstaks húsnæðisstuðnings samkvæmt 4. gr. reglna Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning um sama hlutfall og hækkun tekju- og eignamarka ráðuneytisins eða úr kr. 90.200 í 102.500.