Bréf Ingvars Arnarsonar bæjarfulltrúa um tímabundna lausn frá störfum bæjarfulltrúa.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. (925). fundur
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir erindi bæjarfulltrúa Ingvars Arnarsonar, um leyfi frá störfum og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja erindið.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarfulltrúa Ingvari Arnarsyni, leyfi frá störfum í bæjarstjórn tímabundið frá 1. september 2023 til 30. apríl 2024 samkvæmt heimild í 2. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 1. mgr. 31. gr. samþykkta um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Harpa Þorsteinsdóttir, varabæjarfulltrúi mun taka sæti sem aðalmaður í bæjarstjórn á ofangreindu tímabili.
Bæjarstjórn samþykkir að Þorbjörg Þorvaldsdóttir, gegni embætti 2. varaforseta á ofangreindu tímabili.
Bæjarráð Garðabæjar
02
30. (2083). fundur
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.