Beint í efni

5. fundur

18.01.2023
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

5. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

18.01.2023

Kl. 16:00 - 18:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Eva Björg F Torfadóttir - varamaður
  • Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - varamaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Jóhann Skagfjörð Magnússon - fulltrúi skólastjóra
  • Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Almar Guðmundsson bæjarstjóri og starfandi sviðsstjóri fræðslu- menningarsviðs sat einnig fundinn.

Dagskrá

Málsnúmer 2212136

01

Verkferlar er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins.

Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs og Alma Dagbjört Ívarsdóttir verkefnisstjóri hjá Mannviti fóru yfir niðurstöður úr sýnatökum í skólahúsnæði Garðabæjar og kynntu verkferla vegna aðgerða í tengslum við rakaskemmdir. Lagt var fram minnisblað um stöðu heildarúttektar á húsnæði Flataskóla og yfirlit og endurbætur undanfarin ár. Þá var farið yfir ályktun starfsfólks Flataskóla. Upplýst var að skólastarf er hafið í færanlegum kennslustofum við Hofsstaðaskóla. Í undirbúningi er að hefja viðgerðir vegna skemmda og umbætur á húsnæði skólanna. Þá var farið yfir niðurstöður úr sýnatökum í Álftanesskóla. Þekking á málefninu hefur aukist síðustu ár og vinnulag byggir nú á gagnsæi og opnum samskiptum, ávallt með heilsu og öryggi nemenda og starfsmanna að leiðarljósi. Starfsmenn, foreldrar og nemendur fá reglubundnar upplýsingar um stöðu mála í gegnum tölvupóst og á heimasíðu Garðabæjar, þar sem finna má upplýsingar um endurbætur vegna rakaskemmda. Skólanefnd þykir ákaflega leitt að börn og starfsfólk hafi þurft að upplifa álag og óþægindi vegna þessara mála.

Málsnúmer 2301140

02

Skóladagatal leik- og grunnskóla 2023-2024

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 2208429

03

Tillaga um úttekt á stöðu frístunda- og tómstundastarfs fyrir börn á gunnskólaaldri í Garðabæ

Minnisblað Fræðslu- og menningarsviðs lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 2211059

04

Þróunarsjóður grunnskóla 2023

Helstu áherslur þróunarsjóðs grunnskóla Garðabæjar ræddar.