13. fundur
13. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
01.11.2023
Kl. 16:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - varamaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hafdís Bára Kristmundsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
- Vera Rut Ragnarsdóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2310592
01
Innra mat skóla - kynnng á Bravo lesson
Vilborg Einarsdóttir framkvæmdastjóri kynnti gæðakerfið Bravo lesson og fór yfir innleiðingarferli Mennntastefnu Garðabæjar í leik- og í grunnskólum Garðabæjar. Kerfið auðveldar innra mat, býður upp á gerð umbótáætlana og markvisst kennslutundarýni. Tölfræði býður upp á skólaprófíl hvers skóla og sýnir styrkleika og tækifæri til umbóta í skólastarfinu.
Málsnúmer 2310593
02
Menningarviðburðir í grunn- og leikskólum 2023-2024
Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrúi Garðabæjar sagði frá menningarviðburðum sem nemendum í skólum bæjarins verður boðið upp á, skólaárið 2023-2024. Skólanefndir lýsa ánægju sinni með metnaðarfulla dagskrá.
Málsnúmer 2308597
03
Menntadagurinn 2023
Farið var yfir Menntadaginn 2023 sem haldinn var í Álftanesskóla fyrir starfsfólk í leik-, grunnskóla og frístundaheimila. Að þessu sinni var dagurinn með breyttu sniði en boðið var upp á tvo fyrirlestra og starfsfólk valdi sér eina málstofu. Í boði voru 19 málstofur þar sem kynntar vour helstu niðurstöður þeirra verkefna sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóðum Garðabæjar í leik- og grunnskólum. Leik- og grunnskólanefndir fela fræðsluskrifstofu að gera könnun meðal starfsfólks varðandi Menntadaginn.
Málsnúmer 2212136
04
Verkferlar er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins.
Grunnskólafulltrúi fóru yfir stöðu vegna rakaskemmda sem komu upp í Garðaskóla. Þá var farið yfir stöðu framkvæmda í Flata-, Urriða- og í Hofsstaðaskóla.
Málsnúmer 2310591
05
Umbótaverkefni grunnskóla 2023-2024
Lagðar voru fram umbótaáætlanir grunnskóla Garðabæjar.
Málsnúmer 2310594
06
Starfsáætlanir grunnskóla 2023-2024
Starfsáætlanir grunnskóla voru lagðar fram og kynntar. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með vel unnar áætlanir.