11. fundur
11. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
23.08.2023
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hafdís Bára Kristmundsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
- Rakel Svansdóttir - varamaður kennara
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
01
Verkferlar er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins.
Fræðslustjóri og fulltrúi fræðslusviðs fóru yfir stöðu framkvæmda í þeim grunnskólum þar sem greinst hafa rakaskemmdir. Upplýst var að framkvæmdir hafa gengið vel í sumar og nú er unnið að lokafrágangi. Lausar kennslustofur í Garðaskóla verða komnar í notkun í lok september og í Urriðaholtsskóla í október.
02
Skólastarf Grunnskóla Garðabæjar - kynning grunnskólafulltrúa.
Grunnskólafulltrúi gerði grein fyrir skólastarfi grunnskóla Garðabæjar og Tónlistarskóla Garðabæjar skólaárið 2022-2023. Farið var yfir fjölda nemenda og sagt frá starfi í einstaka skólum. Upplýst var um samstarf grunnskólanna, tónlistarskólans og Hönnunarsafnsins varðandi menningartengda viðburði. Þá var sagt frá starfi samstarfshóps á vegum SSH um skólamál og verkefnum sem samstarfshópurinn hefur komið að.
03
Skólabyrjun 2023-2024. Fjöldi nemenda og fleiri upplýsingar
Rædd var skólabyrjun skólaársins 2023-2024. 2599 nemandi hófu námi í grunnskólum bæjarins þar af voru 236 nemendur sem hófu nám í 1. bekk.
04
Ársskýrslur grunnskóla 2022-2023
Lagðar voru fram ársskýrslur grunnskólanna vegna skólaársins 2022-2023. Skólanefnd færir þakkir til skólafólks fyrir faglegar og vel unnar ársskýrslur. Þær bera vott um metnaðarfullt og gott skólastarf auk þess sem þær eru mikilvæg heimild og tæki til stefnumótunar í skólastarfinu.
05
Erindi frá starsfólki Urriðaholtsskóla
Starfsfólk Urriðaholtsskóla óskar eftir að færa skipulagsdaginn 21. maí fram til 10. maí 2024. Skólanefnd samþykkir erindið enda sé tryggt að boðið sé upp á heilsdagsþjónustu í frístundaheimilinu.