Beint í efni

6. fundur

07.02.2023
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

6. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Garðaskóla

07.02.2023

Kl. 08:15 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Jóhann Skagfjörð Magnússon - fulltrúi skólastjóra
  • Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2301140

01

Skóladagatal leik- og grunnskóla 2023-2024

Skóladagatal leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2023-2024 var lagt fram til kynningar. Skólanefnd vísar málinu til fræðslu- og menningarsviðs til frekari vinnslu.

Málsnúmer 2212136

02

Verkferlar er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins.

Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs Garðabæjar og Alma Dagbjört Ívarsdóttir verkefnisstjóri hjá Mannvit fóru yfir niðurstöður myglumælinga í Flata- og í Hofsstaðaskóla. Frá sl. hausti hefur verið unnið að ítarlegum heildarúttektum á Flata- og Hofsstaðaskóla og brugðist við með aðgerðum eftir því sem niðurstöður og þekking hafa gefið tilefni til í þágu heilsu og öryggis. Samkvæmt verkferlum Garðabæjar var kennslustofum og svæðum þar sem vísbendingar voru um rakaskemmdir lokað þegar í stað. Hafnar eru viðgerðir vegna skemmda í Flataskóla og í undirbúningi eru viðgerðir í Hofsstaðaskóla. Starfsmenn, nemendur og forráðamenn fá reglubundnar upplýsingar um leið og þær berast í gegnum tölvupóst, á fundum með samráðshópum auk þess er boðað til funda eftir framvindu mála. Allar fyrirliggjandi upplýsingar eru gerðar opinberar, settar á heimasíðu Garðabæjar þar sem finna má skýrslur og upplýsingar vegna rakaskemmda. Lögð er áhersla að upplýsa skólasamfélagið eins hratt og kostur er og mæta þörfum nemenda og starfsmanna eins og mögulegt er. Skólanefnd harmar þau óþægindi og álag sem nemendur og starfsfólk verða fyrir vegna þessara mála og þakkar nemendum, forráðamönnnum og starfsfólki bæjarins sveigjanleika og skilning.

Málsnúmer 2302088

03

Kynning og samtal við skólastjórnendur Garðaskóla

Skólanefnd þakkar skólastjórnendum Garðaskóla fyrir áhugaverða kynningu. Skólanefnd fagnar því að geta kynnt sér skólastarfið með þessum hætti.