Fundargerð bæjarráðs frá 17/5´22
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (904). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., drög að samningi um rekstur leikskóla í Urriðaholti og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Viðreisn fagnar þeirri ákvörðun að samið hafi verið við sjálfstætt starfandi rekstraraðil til þess að reka nýjan leikskóla í Garðabæ. Slík ákvörðun er ekki einungis til þess fallin að bjóða upp á fjölbreytt val foreldra og barna heldur er á sama tíma verið að auka mikilvægt val starfsfólks um starfsumhverfi innan sveitarfélagsins.“
Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., drög að samningi um rekstur leikskóla í Urriðaholti og framkomna bókun.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 3. tl., bréf mennta- og barnamálaráðherra varðandi stuðning við móttöku barna á flótta frá Úkraínu.
Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., bréf mennta- og barnamálaráðherra varðandi stuðning við móttöku barna á flótta frá Úkraínu og 4. tl., erindi Sentia sálfræðistofu um aðstöðu í Heiðmörk fyrir námskeiðahald.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., bréf mennta- og barnamálaráðherra varðandi stuðning við móttöku barna á flótta frá Úkraínu
Fundargerðin sem er 6 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.