Fundargerð bæjarráðs frá 10/5´22
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (904). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 11. tl., fyrirspurn um fjölda tilkynninga er varðar þjónustu við fatlað fólk og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Viðreisn hvetur til þess að Garðabær kalli eftir því að athugasemdir sem berast réttindagæslunni er varða þjónustu við fatlað fólk verði greindar niður á sveitarfélög. Þannig má fá betri upplýsingar um það sem betur má fara enda gagnsæi og tölulegar upplýsingar um þjónustu mikilvægur liður í mati á því hvernig megi almennt bæta þjónustu.“
Ingvar Arnarson, ræddi 5. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi brotthvarf úr framhaldsskólum.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti og 3. tl., útboðslýsingu vegna framkvæmda við 2. áfanga Urriðaholtsskóla og mat á fjárhagslegum áhrifum.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi brotthvarf úr framhaldsskólum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi brotthvarf úr framhaldsskólum.
Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi brotthvarf úr framhaldsskólum.
Björg Fenger, ræddi 5. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi brotthvarf úr framhaldsskólum.
Fundargerðin sem er 11 tl., er samþykkt samhljóða.