Fundargerð bæjarráðs 24/5´22
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (904). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., móttöku flóttafólks frá Úkraínu og 4. tl., bréf varðandi stöðu barna með sérþarfir. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun:
„Það er ljóst að taka verður betur utan um þau börn og ungmenni sem þurfa á sértækum stuðning að halda inn á námskeið sem boðið er upp á yfir sumartímann. Garðabær verður að tryggja meiri fyrirsjáanleika þegar kemur að sumarafþreyingu allra barna.
Sumarfrístund á vegum sveitarfélagsins er leið sem Viðreisn og Framsóknarflokkurinn leggja áherslu á að verði valmöguleiki þar sem sumarnámskeið á vegum íþróttahreyfingarinnar eða annarra utanaðkomandi aðila henta ekki öllum börnum.“
Sara Dögg Svanhildardóttir bæjarfulltrúi Viðreisnar
Brynja Dan Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi Framsóknarflokks
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 4. tl., bréf varðandi stöðu barna með sérþarfir og 2. tl., móttöku flóttafólks frá Úkraínu.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun á lögum nr. nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., móttöku flóttafólks frá Úkraínu og 4. tl., bréf varðandi stöðu barna með sérþarfir.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., bréf varðandi stöðu barna með sérþarfir og 7. tl., skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun á lögum nr. nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., móttöku flóttafólks frá Úkraínu og 8. tl., erindi Fjölbrautaskólans í Garðabæ varðandi samstarf um staðsetningu frisbígolfvallar við skólann.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóma.