Beint í efni

17. fundur

02.03.2020
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

17. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Barnaskóla Hjallastefnunnar

02.03.2020

Kl. 08:15 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Bryndís Stefánsdóttir - fulltrúi kennara
  • Baldur Freyr Ólafsson - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Katrín Friðriksdóttir

Í upphafi fundar óskaði formaður skólanefndar eftir að bæta á dagskrá máli um Cuvid 19 veirusýkingu og viðbrögð grunnskóla í tengslum við hana. Var það samþykkt samhljóða og málið tekið fyrst á dagskrá.

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

Óvissustig - kórónaveira - Covid19

Farið yfir hvernig upplýsingar berast til skóla og foreldra varðandi viðbrögð við veirunni. Forstöðumönnum bæjarins er gert að fara í einu og öllu eftir fyrirmælum frá almannavörnum og embætti landlæknis

Málsnúmer 2002118

02

Kynningar og innritun í grunnskóla 2020

Farið yfir innritunarferli grunnskólanna. Innritun og kynningar standa yfir 3.-9. mars.

Málsnúmer 2002380

03

Kvíði skólabarna

Rætt um næstu skref varðandi nýtingu fjarmagns sem skilgreint hefur verið til að vinna með kvíða skólabarna. Skóladeild falið að koma verkefninu í farveg í takt við umræðuna á fundinum

Málsnúmer 2002027

04

Skóladagatal leik- og grunnskóla 2020-2021

Lagt fram til kynningar og samþykktar. Skólanefnd bendir á að faglegar forsendur liggja til grundvallar við gerð skóladagatals og reynt að tryggja að starfsdagar grunnskóla falli ekki ítrekað á sömu vikudaga.

Lagt fram til kynningar og samþykktar. Skólanefnd bendir á að faglegar forsendur liggja til grundvallar við gerð skóladagatals og reynt að tryggja að starfsdagar grunnskóla falli ekki ítrekað á sömu vikudaga.

Málsnúmer 2001391

05

Ráðning skólastjóra

Skólanefnd upplýst um að Ólöf skólastjóri Flataskóla muni láta af störfum í sumar og auglýst verði fljótlega eftir nýjum skólastjóra. Skólanefnd þakkar Ólöfu farsæl störf.

Málsnúmer 2002379

06

Kynning á skólastarfi og samtal við skólastjórnendur

Skólanefnd þakkar Barnaskóla Hjallastefnunnar fyrir kynninguna og lýsir yfir ánægju með að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti.