Beint í efni

48. (1956). fundur

08.12.2020
Bæjarráð Garðabæjar

48. (1956). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

08.12.2020

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID-19 - hættustig almannavarna.

Bæjarstjóri fór yfir gögn frá almannavarnarnefnd en ný reglugerð um takmarkanir vegna sóttvarnaraðgerða mun taka gildi á fimmtudag. Bæjarstjóri upplýsti að hafinn er undirbúningur vegna bólusetningar og sagði frá litakóðunarkerfi sem verið er að kynna á vegum almannavarna.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og yfirfélagsráðgjafi á fjölskyldusviði gerðu grein fyrir stöðu mála á sínum sviðum.

Bæjarfulltrúi Sara Dögg Svanhildardóttir var á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2012038

02

Bréf Hagstofu Íslands varðandi manntal og húsnæðistal, dags. 27.11.20.

Bæjarráð lýsir yfir vilja til að vinna með Hagstofunni vegna öflunar upplýsinga við gerð manntals og húsnæðistals.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012065

03

Ábending frá íbúa varðandi frágang á hringtorgi á móts við Bessastaði, dags. 02.12.20.

Bæjarráð þakkar ábendinguna og tekur undir sjónarmið um að bæta megi frágang á hringtorginu við Bessastaði. Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og felur honum að taka upp viðræður við Vegagerðina vegna málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012066

04

Bókun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar vegna áforma um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu.

Málsnúmer 2012078

05

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um bálstofu.

Samkvæmt deiliskipulagi fyrir Rjúpnadal sem samþykkt var í bæjarstjórn 19. nóvember 2020 er gert ráð fyrir kirkjugarði og lóð fyrir bálstofu innan skipulagsreitsins. Skipulagið hefur ekki verið staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda. Á þessu stigi hafa ekki verið teknar neinar ákvarðanir um starfsemi kirkjugarðs á svæðinu eða samningar um ráðstöfun lóðar fyrir bálstofu.

Málsnúmer 2012011

06

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um skákkennslu í grunnskólum, 106. mál., dags. 30.11.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2012012

07

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um félagsráðgjöf í grunn- og framhaldsskólum, 113. mál., dags. 01.12.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2012057

08

Bréf Bjarkarhlíðar um fjárframlag árið 2021, dags. 02.12.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2021.

Málsnúmer 2011518

09

Tölvupóstur SSH varðandi samþykkt stjórnar um yfirfærslu vega frá ríki til sveitarfélaga , dags. 27.11.20.

Bæjarstjóri kynnti stöðu mála varðandi viðræður við Vegagerðina um frágang á rekstrar- og viðhaldsþáttum í tengslum við svokallaða skilavegi. Lagt fram bréf SSH til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, dags. 10.11.2020 og svar bréf ráðuneytisins, dags. 11.11.2020 varðandi málið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012049

10

Tölvupóstur frá SSH varðandi samþykkt stjórnar um kynningu á skýrslu á umferðarljósastýringum á höfuðborgarsvæðinu, dags. 02.12.20.

Lögð fram til kynningar skýrsla um niðurstöður úttektar á umferðarljósastýringum á höfuðborgarsvæðinu.

Í úttektinni felst greining á núverandi umferðarljósakerfi og rekstri þess, mat á kostum og göllum mismunandi umferðarljósakerfa og verkferla og tillaga um hvernig þróa á umferðarljósastýringar á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð vísar skýrslunni til kynningar í skipulagsnefnd.

Fylgiskjöl