Beint í efni

19. fundur

12.05.2020
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

19. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020

12.05.2020

Kl. 16:30 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir - varamaður
  • Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Bryndís Stefánsdóttir - fulltrúi kennara
  • Baldur Freyr Ólafsson - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

Kórónaveira - COVID-19

Farið yfir þær breytingar sem urðu á skólahaldi vegna Covid 19. Rætt um hvað við getum lært af þessum tíma sem og stöðuna í skólunum í dag. Skólanefnd felur fræðslu og menningarsviði að tryggja að hver skóli taki saman greinargerð um skólahald á þessu tímabili þar sem fram komi m.a. hvaða lærdóm má draga af því. Skólanefnd og foreldrasamfélagið í bænum færir skólastjórnendum og starfsfólki skólanna þakkir fyrir vel unnin störf.

Málsnúmer 2001390

02

Þróunarsjóður grunnskóla Garðabæjar 2020

Á fundi bæjarráðs 31. mars sl var samþykkt aðgerðaáætlun vegna áhrifa Covid 19, fyrstu viðbrögð. Það voru m.a. kynntar sviðsmyndir sem gera ráð fyrir 100 milljón kr. hagræðingu og eða frestun útgjalda til að koma til móts við tekjutap og kostnaðarauka vegna Covid 19. Í því ljósi er mögulegt að komi til skerðingar á úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla.

Málsnúmer 2005114

03

Starfsmannamál

Farið yfir breytingar í stjórnendahópi í Garðaskóla, Sjálandsskóla, Flataskóla og á fræðslu og menningarsviði. Skólanefnd þakkar starfsfólki vel unnin störf og býður nýtt fólk velkomið til starfa.