Beint í efni

Þróunarsjóður grunnskóla Garðabæjar 2020

Málsnúmer 2001390

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

20. fundur

Dagskrá fundarins var úthlutun úr þróunarsjóði Garðabæjar 2020. Úthlutun átti að fara fram í mars en vegna Covid-19 var úthlutun frestað. Skólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði úr Þróunarsjóði Garðabæjar krónum 12.031.000.- í samræmi við reglur sjóðsins. Gert var ráð fyrir að úthluta 28.000.000 en vegna Covid- 19 verður nú úthlutað 43% af ráðgerðri upphæð. Ef aðstæður leyfa verður 57% úthlutað haustið 2020. Verklag vegna seinni hluta úthlutunar verður þá rætt og ákveðið á fundi skólanefndar haustið 2020. Að þessu sinni bárust 29 umsóknir í sjóðinn sem allar voru teknar til afgreiðslu. Skólanefnd fagnar fjölda áhugaverðra umsókna sem bera vitni metnaðarfullu skólastarfi í Garðabæ. Lögð hefur verið áhersla á að gera verkefnin sýnilegri á vefsíðu bæjarins verið er að leita leiða til að finna lausn á því máli.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

19. fundur

Á fundi bæjarráðs 31. mars sl var samþykkt aðgerðaáætlun vegna áhrifa Covid 19, fyrstu viðbrögð. Það voru m.a. kynntar sviðsmyndir sem gera ráð fyrir 100 milljón kr. hagræðingu og eða frestun útgjalda til að koma til móts við tekjutap og kostnaðarauka vegna Covid 19. Í því ljósi er mögulegt að komi til skerðingar á úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

03

18. fundur

Rætt um stöðu sjóðsins, skólanefnd leggur áherslu á mikilvægi sjóðsins fyrir skólasamfélagið í bænum, áframhaldandi skólaþróun og starfsánægju.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

04

16. fundur

Rætt um mögulegar áherslur sjóðsins. Kjörnum fulltrúum og skóladeild falið að fullmóta tillögur.