Beint í efni

Fyrirspurn Garðabæjarlistans um stöðu innritunar barna í leikskóla bæjarins.

Málsnúmer 2108415

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

31 (1989). fundur

Lagt fram svar við fyrirspurninni.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.

„Garðabæjarlistinn gagnrýnir þau vinnubrögð sem bæjarstjóri kýs að viðhafa í upplýsingagjöf til kjörinna fulltrúa. Í vikunni sem leið óskuðu bæjarfulltrúi og nefndarmaður leikskólanefndar ítrekað eftir upplýsingum frá fræðslusviði um innritun á leikskóla sveitarfélagsins. Þeirri ósk var ítrekað hafnað á þeim forsendum að engar upplýsingar yrðu kynntar fyrr en á fyrirhuguðum fundi leikskólanefndar sem fram fer þann 15. september. Sú tímasetning finnst okkur í minnihlutanum ótæk miðað við þá stöðu sem uppi er varðandi innritun vegna skorts á leikskólaplássi.

Á bæjarstjórnarfundi þann 19. ágúst síðastliðinn fer bæjarfulltrúi og formaður skólanefndar með upplýsingar um stöðu innritunar í leikskólana, sömu upplýsingar og fulltrúar Garðabæjarlistans höfðu óskað eftir án árangurs.“