Opnun tilboða í vetrarþjónustu stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2021-2024.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
31 (1989). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í verkið „Vetrarþjónusta stofnana lóða og húsagatna í Garðabæ 2021-2024“.
Bjartey ehf. kr. 77.451.000
Dráttarbílar vélaleiga ehf. kr. 69.569.820
Kostnaðaráætlun kr. 90.390.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Dráttarbíla ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.