Fundargerð bæjarráðs frá 20/10 ´20.
Málsnúmer 2010022F
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
16. (875). fundur
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og óskaði Stjörnunni til hamingju með afmælið. Þá ræddi Ingvar 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi yfirlit yfir staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu, umferðarhraða og stöðvunarskyldu.
Bæjarstjórn tók undir góðar óskir til Stjörnunnar í tilefni af 60 ára afmæli félagsins 30. október sl.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi yfirlit yfir staðsetningu gangbrauta, hraðahindrana, biðskyldu, umferðarhraða og stöðvunarskyldu.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.