Brekkuskógar 9 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
45. (1953). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Skarphéðni Kjartanssyni, kt. 080788-3049, leyfi til að taka í notkun óútgrafið rými í núverandi einbýlishúsi að Brekkuskógum 9.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
13. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem vísað var til grenndarkynningar. Lögð fram gögn þar sem eigendur eigna sem grenndarkynning náði til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir gera ekki athugasemd við tillöguna. Með vísan í 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 er tímabil grenndarkynningar hér með stytt og skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfið verði veitt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
12. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem sótt er um að breyta óuppfylltu rými í geymslu-og þvottarými. Gluggi verður settur á geymslu.
Ekkert deiliskipulag er í gildi við Brekkuskóga. Samþykki annarra eigenda fyrir umsókninni hússins liggur fyrir.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.grein skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Brekkuskóga nr. 7, 8,10, 11 og 12.