Minnisblað um stöðu tónlistarkennslu í Garðabæ, dags. 20.10.22.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
41. (2048). fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir helstu atriðum minnisblaðsins.
Bæjarráð vísar minnisblaðinu til umfjöllunar í skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar og til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Fram kom ósk um að fá upplýsingar varðandi aldurgreiningu umsókna á biðlista.
Fylgiskjöl
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
02
3. fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að efla tónlistarnám í Garðabæ. Fræðslu- og menningarsviði er falið að vinna að minnisblaði um stöðu tónlistarkennslu í bænum.
Garðabæjarlistinn lagði fram eftirfarandi bókun:
Garðabæjarlistinn mótmælir harðlega síðustu fundargerð tónlistarnefndar frá 17. mars s.l. með Gunnari Einarssyni bæjarstjóra.
Í fyrsta lagi var fundargerðin rituð um tveimur vikum eftir að fundurinn fór fram.
Í öðru lagi var innihald fundargerðarinnar ekki sannleikanum samkvæmt. Bæjarstjórinn tók aldrei undir hugmyndir að vinna að áætlun um stækkun skólans, hvað þá að leggja fram áætlun við undirbúning fjárhagsáætlunar 2023 eins og segir í fundargerðinni.
Í þriðja lagi var fundargerðin aldrei borin undir nefndarmenn hvorki fyrir né eftir að hún var samþykkt í bæjarráði.
Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir og Sólveig Guðrún Geirsdóttir
Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skólanefndinni harma mistök við frágang fundargerðar fundar með bæjarstjóra þann 17. mars sl. Við teljum að á fundinum hafi komið fram fullur stuðningur af hans hálfu um að efla skólann um leið og hann hvatti nefndina til að fylgja málinu eftir með kostnaðaráætlun um stækkun skólans fyrir næstu fjárhagsáætlunargerð fyrir 2023.
Eiríkur K. Þorbjörnsson og Einar Örn Magnússon
(Unnur B. Johnsen var fjarverandi á umræddum fundi)
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
6. (902). fundur
Áslaug Hulda Jónsdóttir kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt Gunnari Val Gíslasyni.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að efla tónlistarnám í Garðabæ. Fræðslu- og menningarsviði er falið að vinna minnisblað um stöðu tónlistarkennslu í bænum, m.a.:
o Samantekt á húsnæði Tónlistarskóla Garðabæjar ásamt kennslurýmum í grunnskólum bæjarins sem notuð eru til tónlistarkennslu í samvinnu við tónlistarskólann, gróf þarfagreining varðandi húsnæði TG næstu árin og fýsileiki þess að stækka núverandi húsnæði skólans við Kirkjulund.
o Skoðun annarra leiða til þess að auka framboð tónlistarnáms í bænum, t.d. með samstarfi við fleiri sjálfstætt starfandi aðila sem bjóða upp á tónlistarkennslu.
Minnisblaðið verði unnið í samráði við skólastjóra TG, aðra skólastjórnendur og menningarfulltrúa Garðabæjar og tilbúið til umfjöllunar í bæjarráði fyrir vinnu fjárhagsáætlunar í haust.“
Greinargerð:
Hlutverk Tónlistarskólans í Garðabæ er að auka hæfni nemenda til að flytja, njóta og greina tónlist og gera þau að virkum hlustendum. Einnig að efla tónlistarlíf almennt í nær- og fjærsamfélaginu. Námið í skólanum er einstaklingsmiðað og leitast er við að kennsluaðferðir og viðfangsefni séu fjölbreytt og við hæfi hvers og eins. Hið hefðbundna nám í TG er í Kirkjulundi 11 en skólinn er einnig með starfsstöðvar í grunnskólum bæjarins þar sem kennt er eftir þörfum hverju sinni.
Þarfir fyrir tónlistarnám eru í sífelldri þróun og mikilvægt fyrir Garðabæ að meta reglulega stöðu mála. Huga þarf að því að efla starfsemi tónlistarskólans og faglega uppbyggingu hans. Fjölgun íbúa leiðir af sér að jafnframt er mikilvægt að huga að næstu skrefum í útvíkkun tónlistarkennslu. Mikið samstarf er við Klifið í Garðabæ þar sem kennt er á hljóðfæri án þess að nemendur séu í reglulegu tónlistarnámi. Kennsla hjá Klifinu fer fram eftir að hefðbundnu skólastarfi innan dagsins lýkur. Skoða þarf sérstaklega með hvaða hætti hægt er að efla enn frekar slíka „léttari“ tónlistarkennslu og samstarf bæjarins við aðila sem haft gætu veg og vanda að slíku.
Í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 er fjárframlag í nýjan þróunarsjóð skapandi greina sem hugsanlegt er að nýta megi til þess að skapa e.k. þróunarverkefni varðandi tónlistarmál í bænum með það að markmiði að styðja enn frekar við ungt tónlistarfólk í Garðabæ sem er að stíga sín fyrstu spor á tónlistarbrautinni.
Áslaug Hulda Jónsdóttir.
Gunnar Valur Gíslason.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um framlagða tillögu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framlagða tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um framlagða tillögu.
Ingvar Arnarson, tók til máls um framlagða tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn fagnar fram kominni tillögu. Hún rímar vel við þann málflutning og þau baráttumál sem fulltrúi Garðabæjarlistans í skólanefnd tónlistarskólans hefur haldið uppi. Grípa þarf til aðgerða til að minnka biðlista í Tónlistarskóla Garðabæjar.“
Gunnar Einarsson, tók til máls og gerði grein fyrir fundi sem hann átti með fulltrúum í skólanefnd tónlistaskólans þar sem m.a. var rætt um húsnæðismál skólans.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu.