Skólabraut 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
2. (2055). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita umhverfissviði Garðabæjar tímabundið leyfi til uppsetningar á lausum kennslustofum við Hofsstaðaskóla.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
1. fundur
Lögð fram umsókn Umhverfissviðs um breytingu á deiliskipulagi Íþrótta-og skólasvæðis við Skólabraut sem hlaut staðfestingu árið 2002.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að eftirfarandi ákvæðum er bætt við greinargerð deiliskipulagsins:
Heimilt er að nýta bílastæði norðan við Hofstaðaskóla sem stæði fyrir 5 bráðabirgðaskólastofur á meðan unnið er að endurbótum skólabyggingar sem eru nauðsynlegar vegna mygluvandamála sem bregðast þarf við.
Heimilt er að útbúa 25 bílastæði á lóð íþróttasvæðis með aðkomu frá bílastæði við Skólabraut á meðan að bílastæði við Hofstaðaskóla eru nýtt undir bráðabirgðaskólastofur.
Skipulagsstjóri samþykkir deiliskipulagsbreytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Íþrótta-og skólasvæðis við Skólabraut í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Með vísan í 2.ml.3.mgr.44.gr. ofangreindra laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.