Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Mávanes 23.

Málsnúmer 2303016

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

17. (2070). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Mávanes 23. Tillagan sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu milli bílskúrs og núverandi húss var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

6. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávanes 23 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur í framhaldi af bílageymslu stækki.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast í því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

5. f.(920). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun byggingarréttar í framhaldi af bílgeymslu.
Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum við Mávanes 21, 22, 24 og 25. (Mál nr. 2303016)

Bæjarráð Garðabæjar

04

11. (2064). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun byggingarréttar í framhaldi af bílgeymslu.
Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum við Mávanes 21, 22, 24 og 25.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

4. fundur

Lögð fram fyrirspurn um breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur í framhaldi af bílageymslu stækki.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í fyrirspurnina og metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum Mávaness 21, 22,24 og 25.