Útför Ólafs G. Einarssonar, heiðursborgara Garðabæjar.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
17. (2070). fundur
Bæjarráð samþykkir að Garðabær í samvinnu við aðstandendur Ólafs G. Einarssonar annist undirbúning útfarar hans og taki að sér greiðslu kostnaðar við útförina. Ólafur lést 27. apríl sl.
Ólafur var tilnefndur heiðursborgari á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 7. janúar 2010 en þá voru liðin um 50 ár frá því að Ólafur var ráðinn sveitarstjóri í Garðahreppi. Ólafur tók sæti í hreppsnefnd Garðabæjar árið 1966 og var forseti fyrstu bæjarstjórnar Garðabæjar í ársbyrjun 1976. Ólafur var kosinn alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1971 og sat á þingi til 1999. Hann var formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins 1979-1991, menntamálaráðherra 1991-1995 og forseti Alþingis 1995-1999.
Bæjarráð vottar aðstandendum Ólafs samúð vegna fráfalls hans.