18. (2071). fundur
18. (2071). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
09.05.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varamaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Steinprýði 17 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðna Jóhannessyni, leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni að Steinprýði 17.
02
Sveinskot - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lækjakór ehf. leyfi til jarðvegsframkvæmda og landmótun á lóðum við Víðiholt.
03
Erindi frá Kópavogsbæ vegna tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 og tillögu að deiliskipulagi fyrir Vatnsendahverfi/Vatnsendahæð, dags. 27.04.23.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
04
Úthlutun og sala lóða á Hnoðraholti.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi að úthlutun lóða í 1. áfanga Hnoðraholts.
05
Stefnuráð byggðasamlaganna - fundargerðir 5., 6. og 7 fundar.
Lagðar fram fundargerðir stefnuráðs byggðasamlaganna, dags. 3. mars 2023, 13 mars 2023 og 4. apríl 2023.
06
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023-2026, 978. mál, dags. 28.04.23.
Lagt fram.
07
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tímabundnar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi, 1028. mál, dags. 05.05.23.
Lagt fram.
08
Bréf Vina íslenskrar náttúru (VÍN) til Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi skipulag skógræktar, dags. 14.04.23.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.
09
Framlög til stjórnmálaflokka 2023.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu á greiðslu til stjórnmálasamtaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2023
Framsóknarflokkur kr. 474.375
Viðreisn kr. 482.026
Sjálfstæðisflokkur kr. 1.784.005
Garðabæjarlistinn kr. 759.597
Framlög verða greidd enda liggi fyrir gögn til staðfestingar á að ofangreind stjórnmálasamtök hafa sinnt upplýsingaskyldu sinni gagnvart Ríkisendurskoðun samkvæmt 5. gr. a. laga nr. 162/2006 um starfsemi stjórnmálasamtaka.
10
Beiðni Samkeppniseftirlitsins um umsögn vegna kvörtunar Fimleikafélags Hafnarfjarðar í tengslum við samning Garðabæjar og Knattspyrnusambands Íslands um leigu á Miðgarði, dags. 04.05.23.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.
11
Staða kjarasamningsviðræðna við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Samningar í kjaradeilu Samband íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar hafa ekki náðst og munum fyrstu verkfallsaðgerðir sem boðaðar hafa verið hefjast 15. og 16. maí. Starfsmenn í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa í leikskólum Garðabæjar munu leggja niður störf 15. maí og fram að hádegi 16. maí.