Beint í efni

39. (2334). fundur

10.11.2026
Bæjarráð Garðabæjar

39. (2334). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

10.11.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2611036

01

Upplýsingabæklingur Almannavarna - Verum viðbúin. Kynning. <br/><br/>

Á fund bæjarráðs mætti Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar og kynnti átakið "Verum viðbúin" sem ætlað er að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins.

Málsnúmer 2304477

02

Tilboð í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti.

Lagður fram listi yfir framkomin tilboð í byggingarétti í Hnoðraholti suður - háholti.

Fyrir liggur að hæstbjóðendum hefur verið send tilkynning um að boði þeirra hafi verið tekið.

Nánar tiltekið sundurliðast tilboðin sem hér segir:

Byggingarréttur einbýlishúsa:

Sólholt 17 - alls 7 tilboð.

Sólholt 19 - alls 7 tilboð.

Sólholt 21 - alls 7 tilboð.

Sólholt 23 - alls 8 tilboð.

Sólholt 24 - alls 5 tilboð.

Sólholt 25 - alls 15 tilboð.

Sólholt 26 - alls 10 tilboð.

Sólholt 28 - alls 10 tilboð.

Sólholt 30 - alls 12 tilboð.

Sólholt 32 - alls 18 tilboð.

Sólholt 34 - alls 17 tilboð.

Selholt 1 - alls 30 tilboð.

Selholt 10 - alls 9 tilboð.

Selholt 2 - alls 18 tilboð.

Selholt 3 - alls 28 tilboð.

Selholt 4 - alls 14 tilboð.

Selholt 5 - alls 22 tilboð.

Selholt 6 - alls 15 tilboð.

Selholt 7 - alls 22 tilboð.

Selholt 8 - alls 12 tilboð.

Selholt 9 - alls 24 tilboð.

Selholt 11 - alls 30 tilboð.

Selholt 12 - alls 12 tilboð.

Selholt 14 - alls 11 tilboð.

Selholt 16 - alls 9 tilboð.

Selholt 18 - alls 22 tilboð.

Alls bárust þannig 394 tilboð í byggingarrétti einbýlishúsa.

Tilboð í raðhúsalóðir:

Haustbraut 1-9 alls 17 tilboð.

Haustbraut 11-21 - alls 13 tilboð.

Haustbraut 23-33 - alls 15 tilboð.

Haustbraut 35-46 - alls 12 tilboð.

Alls bárust þannig 57 tilboð í byggingarrétti raðhúsa.

Tilboð í raðhúsalóðir byggingarsamvinnufélaga:

Sólholt 2-8 - alls 2 gild tilboð.

Sólholt 3-7 - alls 2 gild tilboð.

Sólholt 10-16 - alls 2 gild tilboð.

Sólholt 9-15 alls 2 gild tilboð.

Sólholt 18-22 alls 2 gild tilboð.

Alls bárust 3 tilboð í byggingarétti raðhúsalóða fyrir byggingarsamvinnufélög. Ógild tilboð í byggingarrétti raðhúsalóða byggingarsamvinnufélaga voru samtals 8 í framangreindar raðhúsalengjur. Bjóðendur einkahlutafélög sem uppfylla ekki söluskilmála.

Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs frekari úrvinnslu tilboðanna og að bjóða þeim sem buðu í byggingarlóðir sem til sölu voru, lóðirnar til kaups í samræmi við fyrirliggjandi tilboð, ef þeir sem hærra hafa boðið fullnægja ekki skilyrðum söluskilmála.

Málsnúmer 2610018

03

Opnun tilboða í verkið - Þjónusta og viðhald gatnalýsingar í Garðabæ 2027-2030.

Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Þjónusta og viðhald gatnalýsingar 2027-2030":

1. Rafvirki og Pípari Fyrir Þig ehf., kr. 103.311.040 (85,75%).

2. Nortek ehf., kr. 94.970.000 (78,83%).

3. Ljósvistar ehf., kr. 85.734.330 (71,16%).

4. Tengill ehf., kr. 116.250.200 (96,49%).

5. Bergraf ehf., kr. 99.223.950 (82,36%).

6. Rafal ehf., kr. 80.417.790 (66,75%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 120.475.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Rafal ehf., kr. 80.417.790 (66,75%).

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2611083

04

Tilkynning frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála um stjórnsýslukæru UUA2611002 - Byggingarleyfi Hólmatún 57, dags. 03.11.26.

Lögð fram kæra íbúa Hólmatúns 56 til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna útgáfu byggingarleyfis og stækkunar einbýlishússins við Hólmatún 57.

Bæjarráð felur Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Málsnúmer 2611119

05

Tilkynning frá Kærunefnd útboðsmála varðandi kæru ÞG Verk ehf. á forvali vegna Hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri, dags. 06.11.26.

Lögð fram kæra ÞG verktaka ehf. til Kærunefndar útboðsmála, vegna forvalsumsóknar kæranda í verkefninu "Hjúkrunarheimili í Vetrarmýri, uppbygging og útleiga" dags. 6. nóvember 2026.

Bæjarráð felur Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Málsnúmer 2609514

06

Framlenging samnings um samræmda móttöku flóttafólks.

Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri samræmdrar móttöku flóttafólks, mætti á fund bæjarráðs og kynnti minnisblað velferðarsviðs vegna framlengingar samnings um samræmda móttöku flóttafólks.

Bæjarráð samþykkir tillögu þá sem kemur fram í minnisblaðinu, um að gerður verði viðauki við samning um samræmda móttöku flóttafólks, sem miði að því að Garðabæ veiti allt að 70 notendum í senn þjónustu til ársloka 2027. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu hjá velferðarsviði og til kynningar í velferðarráði.

Málsnúmer 2611076

07

Bókun frá 636. fundi stjórnar SSH - Fjárhagsáætlun Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, dags. 04.11.26.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Málsnúmer 2611019

08

Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands varðandi ágóðahlutagreiðslu 2026, dags. 28.10.26.

Lagt fram bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands. Í bréfinu kemur fram það mat stjórnar EBÍ að rétt sé að gera hlé á útgreiðslu og verður ágóðahlutur því ekki greiddur að þessu sinni.

Málsnúmer 26102680

09

Beiðni Golfklúbbs GKG um stuðning við framkvæmd Íslandsmótsins í höggleik 2027, dags. 26.10.26.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um nánari útfærslu málsins.

Málsnúmer 2611056

10

Bréf Lionsklúbbs Álftaness varðandi húsnæði fyrir skötuveislu á Þorláksmessu, dags. 03.11.26.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.