Beint í efni

Opnun tilboða í verkið - Þjónusta og viðhald gatnalýsingar í Garðabæ 2027-2030.

Málsnúmer 2610018

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

39. (2334). fundur

Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Þjónusta og viðhald gatnalýsingar 2027-2030":

1. Rafvirki og Pípari Fyrir Þig ehf., kr. 103.311.040 (85,75%).

2. Nortek ehf., kr. 94.970.000 (78,83%).

3. Ljósvistar ehf., kr. 85.734.330 (71,16%).

4. Tengill ehf., kr. 116.250.200 (96,49%).

5. Bergraf ehf., kr. 99.223.950 (82,36%).

6. Rafal ehf., kr. 80.417.790 (66,75%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 120.475.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Rafal ehf., kr. 80.417.790 (66,75%).

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.